Formúla 1

Lewis Hamilton aldrei ógnað í Kína

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Hamilton á Shanghai brautinni
Hamilton á Shanghai brautinni Vísir/Getty
Lewis Hamilton á Mercedes vann kínverska kappaksturinn. Liðsfélagi hans, Nico Rosberg varð annar og Fernando Alonso á Ferrari varð þriðji.

Hamilton hóf keppnina á ráspól og vann þriðju keppnina í röð, sem er persónulegt met fyrir hann. Nico Rosberg hafði meira að gera til að tryggja sér pláss á verðlaunapallinum.

Rosberg hóf keppni í fjórða sæti. Hann tók fram úr Daniel Ricciardo á lengsta beina kafla tímabilsins, með hjálp betri vélar.

Rosberg tók svo fram úr Alonso á sama stað. Ferrari maðurinn gat ekki varist af neinu viti. Mercedes vélin gerði Rosberg því þokkalega auðvelt fyrir að komast fram úr keppinautunum. En hann gat ekki minnkað bilið sem Hamilton hafði þegar búið sér til.



Daniel Ricciardo varð fjórði og hafði ekki hraðann til að ná Alonso í lokinn. Alonso náði fyrsta verðlaunasæti tímabilsins fyrir Ferrari.

Alonso í keppninni.Vísir/Getty
Hamilton sagði eftir keppnina „Ég trúi því ekki hvað bíllinn er góður og hversu mikið liðið hefur lagt á sig. Ég gat passað upp á dekkin og keppt við sjálfan mig.“

„Ég hlakka til að eiga eðlilega helgi aftur, ánægður með annað sætið og að vera með smá forskot í heimsmeistarakeppninni,“ sagði Rosberg

„Góð helgi, við náðum að bæta bílinn aðeins á milli keppna. Ég er ánægður með verðlaunapallinn,“ sagði Alonso.

Nico Rosberg heldur efsta sætinu í heimsmeistarakeppni ökumanna með 79 stig. Lewis Hamilton er með 75 og Fernando Alonso komst í þriðja sætið í dag með 41 stig.



„Við þurfum að átta okkur á hvað Seb (Sebastian Vettel) vantar út úr bílnum sem Daniel (Ricciardo) er að ná,“ sagði Christian Horner keppnisstjóri Red Bull.

Hamilton og Rosberg sprauta kampavíninu á verðlaunapallinum.Vísir/Getty
Úrslit keppninnar voru:



1.Lewis Hamilton - Mercedes - 25 stig

2.Nico Rosberg - Mercedes - 18 stig

3.Fernando Alonso - Ferrari - 15 stig

4.Daniel Ricciardo - Red Bull - 12 stig

5.Sebastian Vettel - Red Bull - 10 stig

6.Nico Hulkenberg - Force India - 8 stig

7.Valtteri Bottas - Williams - 6 stig

8.Kimi Raikkonen - Ferrari - 4 stig

9.Sergio Perez - Force India - 2 stig

10.Daniil Kvyat - Toro Rosso - 1 stig

11.Jenson Button - McLaren

12.Jean-Eric Vergne - Toro Rosso

13.Kevin Magnussen - McLaren

14.Pastor Maldonado - Lotus

15.Felipa Massa - Williams

16.Esteban Gutierrez - Sauber

17.Kamui Kobayashi - Caterham

18.Jules Bianchi - Marussia

19.Max Chilton - Marussia

20.Marcus Ericsson - Caterham

Adrian Sutil - Sauber - kláraði ekki

Romain Grosjean - Lotus - kláraði ekki


Tengdar fréttir

Hamilton og Rosberg ræða málin

Nico Rosberg segir að hann og liðsfélagi hans hjá Mercedes muni setjast niður með liðiðnu fyrir kínverska kappaksturinn. Markmiðið er að hreinsa loftið eftir afar spennuþrungna keppni á milli þeirra í Bahrain.

Hamilton fljótastur á seinni æfingunni

Lewis Hamilton á Mercedes náði hraðasta hring á seinni föstudagsæfingunni fyrir Kínakappasturinn í formúlu eitt. Fernando Alonso á Ferrari varð annar. Nico Rosberg á hinum Mercedes bílnum varð þriðji, á undan Red Bull bílunum.

Lewis Hamilton á ráspól í Kína

Lewis Hamilton náði ráspól í Kína. Red Bull bílarnir voru svo næstir, Daniel Ricciardo náði öðru sæti á ráslínu og Sebastian Vettel því þriðja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×