Enski boltinn

Lék Owen og tók viðtal við Sturridge | Myndband

Anton Ingi Leifsson skrifar
Farley og Sturridge.
Farley og Sturridge. vísir/skjáskot
Darren Farley er ekki nafn sem margir þekkja. Maðurinn er ein af betri eftirhermum Englands, en hann er mikill stuðningsmaður Liverpool.

Hann hefur í gegnum árin leikið marga skemmtilega karaktera hjá Liverpool, en hann hefur meðal annars leikið Michael Owen, Steven Gerrard og Jamie Carragher.

Á dögunum tók BT Sport sig til og boðaði Farley til þess að taka viðtal við Daniel Sturridge í aðdraganda undanúrslitaleiksins gegn Aston Villa á sunnudag.

Sjón er sögu ríkari, en myndbandið athyglisverða má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×