Bíó og sjónvarp

Leikstjóri Þrasta: „Íslenska kvikmyndasumarið er runnið upp“

Bjarki Ármannsson skrifar
Rúnar Rúnarsson segir verðlaunin á San Sebastian-hátíðinni eiga eftir að opna margar dyr.
Rúnar Rúnarsson segir verðlaunin á San Sebastian-hátíðinni eiga eftir að opna margar dyr. Vísir/Vilhelm
„Við erum alveg í skýjunum yfir þessu,“ segir Rúnar Rúnarsson, leikstjóri Þrasta sem var rétt í þessu valin besta kvikmyndin á San Sebastian-kvikmyndahátíðinni á Spáni. „Þetta á eftir að hjálpa okkur mikið með framtíðarlíf myndarinnar og opna alls konar dyr fyrir okkur.“

Aðeins ein íslensk kvikmynd hefur áður hlotið aðalverðlaunin á A-kvikmyndahátíð, en það er Mýrin í leikstjórn Baltasars Kormáks. Hún hlaut Kristalhnöttinn svokallaða á Karlovy Vary kvikmyndahátíðinni í Tékklandi árið 2007. Rúnar segir verðlaunin í kvöld ekki aðeins viðurkenningu fyrir sig heldur kvikmyndagerð á Íslandi í heild sinni.

„Það er alltaf gott að fá pínu klapp á bakið sjálfur, en þetta er þvílík viðurkenning fyrir íslenska kvikmyndagerð,“ segir hann. „Það hefur verið talað um kvikmyndavor á Íslandi lengi en miðað við hvernig hefur gengið í ár þá ætla ég að leyfa mér að lýsa því yfir að íslenska kvikmyndasumarið er runnið upp.“

Rúnar kveðst rosalega stoltur af hópnum sem kom að gerð myndarinnar. Hann sé sáttur með afraksturinn og allt annað sé bónus, þó hann hafi auðvitað látið sig dreyma um að bera sigur úr býtum á hátíðinni. En hvað tekur nú við hjá hópnum?

„Næsta mál á dagskrá, það er það sem okkur hlakkar mest til. Það er að koma heim,“ segir Rúnar. Þrestir verður forsýnd á RIFF-kvikmyndahátíðinni næsta fimmtudag en fer í almenna sýningu 16. október.

Vísir náði tali af Rúnari í örstuttri pásu fyrir blaðamannafund hátíðarinnar. Að honum loknum mun íslenski hópurinn halda í veislu í kastala efst á hæðinni í bænum San Sebastian, sem Rúnar segir ótrúlega fallegan bæ. Rúnar segist ætla að halda upp á árangurinn fram eftir nóttu og bað í samtali við Vísi kærlega að heilsa öllum sem komu að gerð myndarinnar en gátu ekki verið með á Spáni í kvöld.


Tengdar fréttir

Eiginhandaáritanir og myndatökur

Þrestir var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í San Sebastian síðastliðinn sunnudag og var vel tekið. Aðalleikari myndarinnar, Atli Óskar Fjalarsson, veitti eiginhandaráritanir og lét smella af sér myndum með áhugasömum aðdáendum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×