Sport

Leifur Garðarsson og Aron Pálmarsson á NFL í London

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Leifur Garðarsson
Leifur Garðarsson vísir/stefán
Leifur Garðarsson körfuboltadómari og fótboltaþjálfari verður á leik Atlanta Falcons og Detroit Lions í bandaríska fótboltanum NFL í dag klukkan 13:30 og setti mynd af á Twitter.

Þetta er annar leikurinn í NFL deildarkeppninni sem leikinn er á Wembley og er Leifur ekki eini Íslendingurinn sem ætlar að njóta skemmtunarinnar því handboltahetjan Aron Pálmarsson svaraði Leif á Twitter þar sem hann sagði að hann myndi sjá Leif á leiknum.

Myndina og tístið hans Leifs má sjá hér að neðan.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×