Enski boltinn

Leicester staðfestir kaupin á Slimani

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Slimani var næstmarkahæstur í portúgölsku úrvalsdeildinni í fyrra.
Slimani var næstmarkahæstur í portúgölsku úrvalsdeildinni í fyrra. vísir/getty
Englandsmeistarar Leicester City hafa staðfest kaupin á alsírska framherjanum Islam Slimani frá Sporting Lissabon.

Talið er að Slimani hafa kostað um 30 milljónir punda sem gera hann að dýrasta leikmanni í sögu félagsins. Hann skrifaði undir fimm ára samning við Leicester.

Hjá Leicester hittir Slimani fyrir landa sinn, Riyad Mahrez, sem var valinn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili.

Slimani, sem er 28 ára, var þrjú ár í herbúðum í Sporting og skoraði 57 mörk í 109 leikjum fyrir félagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×