Enski boltinn

Leicester heldur áfram að styrkja leikmannahópinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kanté (til vinstri) er nýjasti leikmaður Leicester City.
Kanté (til vinstri) er nýjasti leikmaður Leicester City. vísir/getty
Leicester City hefur fest kaup á franska miðjumanninum N'Golo Kanté frá Caen.

Leicester borgaði 5,6 milljónir punda fyrir Kanté sem skrifaði undir fjögurra ára samning við enska úrvalsdeildarliðið.

Kanté er 24 ára varnarsinnaður miðjumaður sem spilaði vel með Caen í fyrra.

Kanté er fjórði leikmaðurinn sem Leicester fær til sín í sumar, á eftir Christian Fuchs, Robert Huth og Shinji Okazaki.

Þá er kominn nýr maður í brúna hjá Leicester; Ítalinn Claudio Ranieri sem tók við stjórastarfinu af Nigel Pearson sem var látinn taka pokann sinn fyrr í sumar, þrátt fyrir að hafa tekist að halda Refunum í úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×