Innlent

Leggur áherslu á málefni innflytjenda og vill alvöru samtal um kvótakerfið

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Óttarr Proppé þingmaður Bjartrar framtíðar.
Óttarr Proppé þingmaður Bjartrar framtíðar. 365/ÞÞ
Óttarr Proppé alþingismaður gefur á kost á sér sem formaður Bjartrar framtíðar á ársfundi flokksins 5. september nækstomandi. Hann nefnir málefni innflytjenda og sjávarútvegsmál sem stór baráttumál.

Óttarr er annar flokksmaðurinn til að lýsa yfir framboði en áður hafði Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður bæjarstjórnar í Hafnarfirði og bæjarfulltrúi Bjartrar framtíðar lýst yfir áhuga á forystuhlutverki í flokknum.

Hratt fjarað undan fylginu á skömmum tíma

Þetta graf (sjá myndskeið með frétt) sýnir glögglega fylgishrun Bjartrar framtíðar. Eftir að hafa fengið 8,2 prósent í síðustu þingkosningum mældist flokkurinn með 17,5 prósent í í mars í fyrra. Á þessu ári fór síðan að molna undan fylginu og í síðustu könnunum hefur flokkurinn verið að mælast með undir 5 prósentum. Verði það niðurstaðan í kosningunum eftir tvö ár nær Björt framtíð engum manni inn á þing.

Fræðimenn í stjórnmálafræði hafa fært fyrir því rök að fylgishrun Bjartrar framtíðar megi að einhverju leyti skýra með skírskotunar til þess að miðjuflokkar njóti um þessar mundir lítilla vinsælda, ekki bara á Íslandi heldur víðar í álfunni. Í umróti stjórnmálaþróunar nútímans leiti kjósendur í auknum mæli til jaðarflokka sem stefni að róttækari breytingum á samfélaginu. Flokkar eins og Björt framtíð tapi á því.

Óttarr Proppé segir að flokkurinn þurfi að vera duglegri að koma stefnu sinni á framfæri.

„Ég held að málefnastaða Bjartrar framtíðar og grunngildin okkar séu mjög sterk og skýr. Og það er samstaða um þau innan flokksins. Þetta eru hlutir sem er verið að kalla eftir í samfélaginu. Ég held að það klagi upp á okkur að bæta samtal við kjósendur,“ segir Óttar.

En hvaða mál leggur Óttar mesta áherslu á? „Ég persónulega hef mjög mikinn áhuga á málefnum útlendinga og innflytjenda og mun örugglega leggja áherslu á þau mál.” 

Hann nefnir efnahagsmál, velferðarmál og fiskveiðistjórnunarkerfið. „Við eigum það inni í pólitíkinni að taka djúpt og mikið samtal um sjávarútvegsmálin og skiptingu arðs af auðlindum. Það er mjög heitt mál sem pólitíkin hefur kannski dálítið veigrað sér að fara á fullt í,“ segir Óttarr.

Veiðiheimildir í uppboðskerfi

Björt framtíð hefur það á stefnuskránni að veiðiheimildir á nýjum fisktegundum fari beint á uppboð. Þá vill flokkurinn að makríllinn fari yfir í uppboðskerfi á sex árum og í kjölfarið fari aðrar tegundir inn í slíkt kerfi. Markmiðið er að aflaheimildir vegna allra fisktegunda verði komnar í uppboðskerfi í fyllingu tímans. 


Tengdar fréttir

Ekki hægt að skrifa fylgishrunið á Guðmund

Prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands segir ekkert styðja þá ályktun að skrifa megi fylgishrun Bjartrar framtíðar á formann flokksins.

Föstudagsviðtalið: Treystir sér til forystustarfa

Óttarr Proppé segir ástríðu sína fyrir pólítík ekki endilega vera á spíssinum. Hann útilokar þó ekki formannsframboð. Hann segir viðvarandi fylgistölur Bjartrar framtíðar sýna að það sé sambandleysi frá þeim til kjósenda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×