Innlent

Launin í skólabækur og aðrar nauðsynjar

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Yfir tveir þriðju hlutar ungmenna sem vinna með skóla nota vetrarhýruna sína sem vasapening.
Yfir tveir þriðju hlutar ungmenna sem vinna með skóla nota vetrarhýruna sína sem vasapening. VÍSIR/GVA
„Verulegur hluti framhaldsskólanema sem vinnur með námi notar launin til að borga fyrir skólabækur og innritunargjöld auk sumra annarra nauðsynja. Mér finnst hafa verið lítil umræða um hvaða áhrif breytingar á framhaldsskólanum hafi á möguleikana til vinnu með námi. Möguleikar á sumarvinnu gætu líka skerst. Ætla stjórnvöld til dæmis að greiða hærri barnabætur?“ spyr Margrét Einarsdóttir félagsfræðingur.

Við vinnslu doktorsverkefnis síns skoðaði Margrét tengsl stöðu foreldra við launavinnu 13 til 17 ára ungmenna, við umfang bæði sumarvinnu og vinnu með skóla. Spurningalisti var lagður fyrir 2.000 manna tilviljunarúrtak í þjóðskrá árið 2008. Rétt tæpur helmingur 13 til 17 ára íslenskra ungmenna vinnur með skóla. Um fjórðungur notar að minnsta kosti hluta launanna í brýnar nauðsynjar. Tveir þriðju hlutar framhaldsskólanema vinna með skóla og tæpur helmingur þess hóps notar launin í brýnar nauðsynjar, þar á meðal í skólabækur og skólagjöld.

„Niðurstöðurnar sýna að börn foreldra sem hafa minni menntun eru yngri þegar þau byrja í sumarvinnu og líklegri til að vinna mikið með skóla. Þau eru jafnframt líklegri til að nota vetrarlaunin í brýnar nauðsynjar heldur en börn sem eiga báða foreldra með háskólamenntun,“ greinir Margrét frá. Hún segir ástæðu til að spyrja hvort íslenska velferðarkerfið styðji ekki nógu vel við ungt skólafólk fjárhagslega.

Margrét bendir á að hafa verði í huga að menntunarstaða foreldra sé aðeins óbeinn mælikvarði á efnahagslega stöðu þeirra. Vert sé að benda á að rannsóknin hafi verið gerð þegar mikil þensla var í íslensku efnahagslífi og börn og unglingar áttu greiðan aðgang að vinnu. Því sé brýnt að gera frekari rannsóknir á tengslum launavinnu ungmenna og stöðu foreldra þar sem horft sé á fleiri breytustærðir, m.a. á hjúskaparstöðu og tekjur foreldra.

Vinna barna og unglinga hefur verið í hávegum höfð á Íslandi, að því er Margrét tekur fram. „Mörg íslensk ungmenni hafa vinnu aldurshópsins líka í hávegum. Þau leggja áherslu á rétt sinn til vinnu auk þess sem hún gefi þeim möguleika á að létta undir með foreldrum sínum. Út frá slíkri sýn má líta á niðurstöður rannsóknarinnar jákvæðum augum. Rannsóknin staðfestir hins vegar neikvæð tengsl milli mikillar vinnu með skóla og námsárangurs.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×