Skoðun

Lauflétt?

Erla Skúladóttir skrifar
Þegar nýsköpunarfyrirtækið Lauf Forks var stofnað árið 2011 hófst hinn hefðbundni höfuðverkur: Hvað á barnið að heita? Fyrirtækið var stofnað utan um uppfinningu demparagaffals fyrir reiðhjól, þess léttasta í heimi, og frá upphafi lá fyrir að leikvöllur okkar myndi ná langt út fyrir landamæri Íslands.

Við þurftum því að velja okkur vörumerki sem gæti hentað um heim allan og notið verndar hugverkaréttar um leið. Þannig þurfti merkið að vera vel til þess fallið að greina vörur og þjónustu fyrirtækisins frá vörum og þjónustu annarra og gæta þurfti að því að það væri ekki of lýsandi fyrir þær vörur og þjónustu sem því var ætlað að auðkenna.

Í Laufgöfflunum er notast við svokallaða blaðfjöðrun, á ensku „leaf suspension“, og út frá því kviknaði hugmyndin að nafni fyrirtækisins og vörumerki. Gafflarnir eru auk þess laufléttir og nafngiftin því mjög viðeigandi. Þegar við höfðum skilgreint helstu markaðs- og framleiðslusvæði þurfti að kanna hvort þar væru fyrir í notkun sömu eða svipuð merki fyrir sömu eða svipaða vöru eða þjónustu. Þegar sú leit skilaði engum niðurstöðum hófst önnur leit, ekki síður mikilvæg.

Vörumerki geta nefnilega auðveldlega týnst í þýðingum og það hefur vafist fyrir ýmsum. Þegar framleiðandi Ford setti Pinto bílana á markað á sínum tíma kom tregða á Brasilíumarkaði fyrst um sinn á óvart – þangað til það kom upp úr dúrnum að pinto er brasilískt slangur yfir kynfæri (í smærra lagi) karla!

Annað dæmi sem gjarnan er vísað til er íranska þvottaefnið BARF, sem á þarlendri tungu ku merkja snjór, en færi eflaust öfugt ofan í flesta enskumælandi neytendur – af augljósum ástæðum. Orðabókarleit skilaði engum vafasömum þýðingum á merkinu Lauf.

Vörur okkar hafa verið seldar um allan heim í þrjú ár, vörumerkið öðlast sess og er nú skráð á helstu mörkuðum. Það er sjónrænt auðvelt að muna fjögurra stafa orðmerki en vissulega vefst íslenski framburðurinn fyrir mörgum. Lauf er oft borið fram láf, sem hefur þýskan hljóm. Okkur finnst það í sjálfu sér ekkert verra, enda merkir orðið hlaup eða keppni á þýsku og gafflarnir okkar eru ekki síst ætlaðir hjólreiðafólki sem vill skara fram úr.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×