Innlent

Landsmenn klárir í bátana fyrir Verslunarmannahelgina

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þjóðhátíðargestir sumarið 2010.
Þjóðhátíðargestir sumarið 2010. Vísir/Óskar P. Friðriksson
Þótt veðurspá fyrir helgina hafi verið betri eru Íslendingar um allt land að komast í Verslunarmannahelgargír. Glöggt merki þess má sjá á samfélagsmiðlum þar sem stemningin verður vafalítið mikil um helgina.

Vísir mun sem endranær fylgjast vel með landsmönnum ferðahelgina miklu hvort sem þeir eru á faraldsfæti eða að njóta fámennis í borginni eða öðrum þéttbýliskjörnum.  Hvetjum við ykkur til að senda okkur skemmtilegar myndir á ritstjorn@visir.is eða merkja skemmtilegar færslur á Facebook og Twitter með #verslo eða #verslo2014.

Hér að neðan má sjá nokkur vel valin tíst í aðdraganda Verslunarmannahelgarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×