Fótbolti

LA Galaxy staðfesti Zlatan

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Zlatan er kominn til Bandaríkjanna
Zlatan er kominn til Bandaríkjanna mynd/la galaxy
Bandaríska liðið LA Galaxy staðfesti komu sænska framherjans Zlatan Ibrahimowic á Twitter síðu sinni í dag.

Tilkynningin er búin að liggja í loftinu í allan dag eftir að Manchester United leysti Zlatan undan samningi í gær.

Hann tilkynnti komu sína til Los Angeles í morgun með því að kaupa heilsíðuauglýsingu í Los Angeles Times en nú er félagið búið að staðfesta það.

„Ég er spenntur að ganga til liðs við félag með sigursögu og hefur einkennt fótbolta í Los Angeles í 20 ár,“ sagði Zlatan á heimasíðu Galaxy.










Tengdar fréttir

Zlatan á leið til Bandaríkjanna

Zlatan Ibrahimovic hefur yfirgefið Manchester United eftir að hann og félagið hefði komist að sameiginlegri niðurstöðu um að rifta samningnum, eins og Vísir greindi frá í dag. Zlatan er á leið til Bandaríkjanna.

United leysir Zlatan undan samningi

Zlatan Ibrahimovic hefur fengið leyfi til þess að yfirgefa Manchester United óski hann þess. BBC greinir frá þessu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×