Heilsa

Kynlífstæki fyrir typpi

sigga dögg skrifar
Vísir/Getty
Algengasta kynlífstækið sem hentar flestum, óháð kynfæri, kynvitund og kynhneigð, er sleipiefni.

 

Til eru allskyns sleipiefni og því getur verið gott að prófa nokkrar tegundir áður en fjárfestir í stærri brúsa. Hægt er að fá mörg sleipefni í minni umbúðum og þannig prófað þig áfram þar til þú finnur hvað hentar þér.

 

Þá er gott að hafa í huga að sílikonsleipiefni (og olíur) geta skemmt ýmis kynlífstæki og því vissara að nota vatnsleysanlegt sleipiefni með kynlífstækjum, sérstaklega ef þau eru úr sílikoni.

 

Í raun henta flest öll kynlífstæki typpum því mörgum þykir gott að fá örvun og titring á typpi, spöng og pung.

 

Þó hafa verið framleidd nokkur kynlífstæki sérstaklega fyrir typpi.

Þessar rúnkur minna einna helst á kertastjaka en eru frá fyrirtækinu LeloVísir/Skjáskot
Margir kannast við rúnkuna, einnig kallað múffa eða vasaljósið.

 

Hugmyndin er sú að þú stingir limnum inn í fóðraðan gúmmíhólk og notar til sjálfsfróunar.

 

Það eru til margar útfærslur af rúnkum. Sumar minna á smart kertastjaka, aðrar á barma eða varir, eða vampíra en einnig er hægt að fá þær eins og fót.

 

Flestar eru fjölnota en einnig er hægt að fá einnota sem eru smurðar með sleipefni.

Typpahringur í sinni einföldustu mynd til að viðhalda stinninguVísir/Skjáskot
Typpahringi er hægt að fá í ýmsum útfærslum.

 

Hefðbundnir eru þeir sem má smeygja neðst á typpið, við rætur þess, og aðstoða við að viðhalda stinningu. Sumir typpahringir titra einnig og eru jafnvel með sérstökum hnúð sem titrar og eru þá hugsaðir fyrir unað bólfélagans.

 

Einnig er hægt að fá typpatitrara sem fer fremst framan á kónginn og er hugsaður til að nota með bólfélaga eða í sjálfsfróun.

 

Þá er hægt að fá slíður utan um typpið sem þykkir það í ummáli. Það er aðallega hugsað með bólfélaga en er einnig hægt að nota í sjálfsfróun, ekki ósvipað rúnku sem er tekin úr hólknum.

TyppapumpurVísir/Skjáskot
Ef þú nennir ekki að sjá um eigins typpi þá getur þú fengið þér Humpus, vélræna rúnku. Þú smeygir henni á liminn, hallar þér aftur (nú eða stendur) og rúnkan sér um rest. Getur hentað mjög vel þeim sem ekki geta örvað sig með höndum af einhverri ástæðu.

 

Strangt til tekið er typpapumpa ekki beint kynlífstæki þó hún geti verið hentug til að fá stinningu í liminn.


Tengdar fréttir

Gjafalisti kynfræðings

Hvað er það heitasta í kynlífstækjabransanum og hvað langar kynfræðing að fá í jólapakkann sinn?






Fleiri fréttir

Sjá meira


×