Innlent

Kvöld­fréttir Stöðvar 2: Odd­vitar stærstu flokkanna í Reykja­víkur­kjör­dæmum sitja fyrir svörum

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Oddvitar stærstu flokkanna í Reykjavíkurkjördæmum norður og suður sitja fyrir svörum í beinni útsendingu í kjördæmaþætti fréttastofu Stöðvar 2 í kvöld, strax að loknum kvöldfréttum.

Í myndveri verða þau Sigríður Ingibjörg Ingadóttir fyrir Samfylkingu, Birgitta Jónsdóttir fyrir Pírata, Hanna Katrín Friðriksson fyrir Viðreisn, Guðlaugur Þór Þórðarson fyrir Sjálfstæðisflokk, Svandís Svavarsdóttir fyrir Vinstri græn, Lilja Alfreðsdóttir fyrir Framsóknarflokk og Björt Ólafsdóttir fyrir Bjarta framtíð. 

Búast má við fjörugum þætti að vanda, en fréttamaður Stöðvar 2, Höskuldur Kári Schram, stýrir umræðunum sem hefjast klukkan 19.10.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×