Innlent

Kvartaði við ráðherra undan ráðuneytisstjóra

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, hringdi í Harald Benediktsson, nefndarmann í fjárlaganefnd, á föstudaginn til að ræða við hann um efni skýrslu sem þingmennirnir Vigdís Hauksdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson kynntu á dögunum undir heitinu „Einkavæðing bankanna hin síðari“.

Í gær lagði Vigdís fram skýrsluna á fundi fjárlaganefndar og óskaði eftir að samþykkt yrði að hún yrði send stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd til meðferðar. Af því tilefni lagði Valgerður Gunnarsdóttir fram bókun þar sem tekið er undir þá kröfu að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd rannsaki málið.

„Þingmenn innan stjórnarmeirihluta fjárlaganefndar hafa fengið beinar hótanir um æru- og eignamissi frá háttsettum embættismanni eftir að skýrslan hafði verið kynnt,“ segir í bókuninni sem Guðlaugur Þór, Ásmundur Einar Daðason, Haraldur Benediktsson og Páll Jóhann Pálsson undirrita auk Valgerðar.

Haraldur sagði síðan í yfirlýsingu að símtal ráðuneytisstjórans og samskipti hans við sig sem alþingismann og fulltrúa í fjárlaganefnd væru óviðeigandi og hótunin í sinn garð væri grafalvarleg.

Sagðist Haraldur hafa leitað leiðbeininga frá Umboðsmanni Alþingis, upplýst forseta Alþingis um efni símtalsins og sent kvörtunarbréf til Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra.

Í yfirlýsingu sem Guðmundur Árnason sendi frá sér í gær segir hann að í samtali sínu við Harald hefði hann tjáð Haraldi þá skoðun sína „að ásakanir í skýrslu sem að sögn nýtur stuðnings meirihluta nefndarinnar, þar á meðal hans, feli í sér rætnar og alvarlegar ásakanir á hendur þeim sem komu að samningum milli gömlu og nýju bankanna að hálfu ríkisins“, eins og segir í yfirlýsingunni.

Guðmundur segist hafa viljað ganga úr skugga um að Haraldur áttaði sig á alvarleika slíkra ásakana og að umræddir starfsmenn áskildu sér rétt til að láta reyna á persónulega ábyrgð þeirra sem slíku héldu fram fyrir dómstólum, enda æra þeirra og starfsheiður að veði.

Guðmundur kveðst ekki hafa átt önnur samtöl við þingmenn um þetta mál. „Sé það upplifun Haraldar að samtalið hafi falið í sér hótun af minni hálfu er hann beðinn velvirðingar á því,“ segir hann í yfirlýsingunni.

Þá minnir Guðmundur á að Guðlaugur Þór hafi opinberlega beðist afsökunar á orðalagi í skýrslunni sem skilja mátti sem „árásir á embættismenn og sérfræðinga“, svo notuð séu orð hans. „Það liggur í eðli máls að slíkt lætur enginn sér í léttu rúmi liggja og í því samhengi átti tilvitnað samtal sér stað,“ segir Guðmundur.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×