Innlent

Krummi sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórn

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Vilhelm
Oddur Hrafn Stefán Björgvinsson, eða Krummi í Mínus var sakfelldur vegna brots gegn valdstjórninni í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Hann var dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi. Krummi var ekki viðstaddur dómskvaðninguna.

Krumma var einnig gert að greiða sakarkostnað upp á 326.300 krónur.

Hann var sakaður um að hafa sparkað í hægri fót lögreglumanns aðfararnótt 12. júní 2013 á heimili Krumma. Við aðalmeðferð málsins neitaði hann sök.

Lögreglu barst kvörtun frá nágranna hans vegna háværrar tónlistar sem barst frá íbúð hans. Þrír lögreglumenn bönkuðu upp á og báðu Krumma að lækka. Þá sögðust þeir finna kannabislykt úr íbúðinni en hann bauð þeim inn, þar sem hann hafði ekkert að fela, eins og hann orðaði það við aðalmeðferð málsins.

Krummi sagði fyrir dómi að lögreglumennirnir hefðu verið dónalegir og með yfirgang.

„Þeir kíkja aðeins inn og eru að litast um,“ sagði Krummi. „Þeir sjá að vinkona mín er þarna inni og um leið og þeir koma inn eru þeir ókurteisir. Þeir eru með leiðindatón og spyrja hana á ensku hvort hún sé að skemmta sér, „Are you having a good time?“ Þetta fór fyrir brjóstið á mér og við byrjum að rífast, ég og lögreglumennirnir.“

Hann viðurkenndi að hafa verið dónalegur og að hafa ýtt við lögreglumann, en sagðist ekki hafa sparkað í neinn.

„Mér fannst tími til kominn að þeir færu, þeir voru búnir að vera með dónaskap og yfirgang við mig og vinkonu mína þarna inni á mínu heimili. Áður en ég veit af er ég síðan bara kominn gólfið, þeir skella mér harkalega niður, tóku mjög fast á mér og handjárnuðu mig harkalega.“


Tengdar fréttir

Krummi segir lögreglu hafa kokkað saman sögu

Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn Oddi Hrafni Stefáni Björgvinssyni, betur þekktum sem Krumma í Mínus, fór fram í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Söngvarinn er ákærður fyrir að sparkað í lögreglumann en hann neitar sök.

Krummi neitaði sök

Oddur Hrafn Stefán Björgvinsson, betur þekktur sem Krummi í Mínus, neitaði sök er mál á hendur honum fyrir að hafa ráðist á lögreglumann við skyldustörf sumarið 2013.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×