Innlent

Krísufundur hjá Framsóknarflokknum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra sést hér yfirgefa fundinn upp úr klukkan 14:30. Hann veitti fjölmiðlum ekki kost á viðtali.
Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra sést hér yfirgefa fundinn upp úr klukkan 14:30. Hann veitti fjölmiðlum ekki kost á viðtali. Vísir/Eyþór
Þingmenn Famsóknarflokksins sitja þessa stundina fund í hádegishléi Alþingis sem boðað var til með mjög stuttum fyrirvara. Tilefni fundarins mun vera almenn óánægja í flokknum með ástandið í forystu flokksins. RÚV greinir frá. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Sigurður Ingi Jóhannsson munu báðir vera á fundinum.

Fundurinn hófst klukkan eitt í dag en í fundarboði til þingmanna kemur fram að staðan í flokknum sé til umræðu og þá sérstaklega sú stjórnarkreppa sem hafi myndast. Heimildir RÚV herma að meirihluti þingmanna Framsóknar hafi óskað eftir og boðað til fundarins.

Miklar deilur eru innan Framsóknarflokksins með fylgi flokksins í könnunum sem hefur verið á bilinu átta til ellefu prósent undanfarnar vikur. Þá eru skiptar skoðanir innan flokksins um það hvort Sigmundur Davíð Gunnlaugsson eigi að gegna áfram formennsku í flokknum. Hafa einstök félög flokksins skorað á Sigurð Inga Jóhannsson að bjóða sig fram til formanns.

Sigmundur Davíð hefur bent á að engar líkur séu á að Sigurður Ingi geri það enda hafi sá síðarnefndi gefið honum loforð þess efnis sem hafi verið innsiglað með faðmlagi.

Sigmundur Davíð var á meðal formanna flokkanna í kappræðum á RÚV í gærkvöldi. Þar tók hann fyrstur til máls og sagðist meðal annars hafa orðið fyrir tilefnislausri og ótrúlegri árás. Vísaði hann þar til viðtalsins sem tekið var við hann vegna félagsins Wintris í tengslum við lekann á Panamaskjölunum.

Þingfundur á Alþingi hófst klukkan 13:40. Fundur Framsóknarflokksins stendur enn yfir. Blaðamaður Vísis er á vettvangi og bíður þess að ná tali af þingmönnum.

Uppfært klukkan 14:35

Sigurður Ingi Jóhannsson hefur yfirgefið fundinn. Hann veitti fjölmiðlum engin viðtöl.

Uppfært klukkan 15:20

Fundurinn stendur enn yfir. Talið er að Sigurður Ingi hafi þurft að yfirgefa fundinn þar sem hann á að halda ræðu á fundinum „Endurskoðun íslensku stjórnarskrárinnar“ á Akureyri klukkan 16.

Uppfært klukkan 16:50

Fundinum er lokið og hefur þingflokkurinn lýst yfir fullum stuðningi við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann flokksins. Nánar hér.



Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×