Fótbolti

Kristinn í sigurliði gegn Kaka

Anton Ingi Leifsson skrifar
vísir/getty
Kristinn Steindórsson spilaði rúmar tuttugu mínútur þegar Columbus Crew bar sigurorð af Orlando City í MLS-deildinni í knattspyrnu í nótt, en lokatölur urðu 3-0.

Blikinn byrjaði á bekknum hjá Columbus Crew sem hefur byrjað ágætlega á tímabilinu. Federico Higuain kom columbus yfir í fyrri hálfleik og þannig stóðu leikar í hálfleik.

Rafael Ramos, leikmanni Orlando, var vikið af velli á 34. mínútu og Justin Meram og Kei Ansu Kamara bættu við sitthvoru markinu í síðari hálfleik fyrir Columbus. Lokatölur 3-0.

Kristinn kom inná á 70. mínútu, en í Orlando leikur enginn annar en brasilíski snillingurinn, Kaka, sem spilaði á árum áður með liðum á borð við Real Madrid og AC Milan.

Columbus er í þriðja sæti Austurdeildarinnar, en þeir eru með átta stig eftir sex leiki. Orlando er í fjórða sætinu, með jafn mörg stig, en einum leik fleira.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×