Skoðun

Kreppa og kratafár

Þorvaldur Þorvaldsson skrifar
Bréf Árna Páls til Samfylkingarfólks hefur vakið miklar vangaveltur. Ekki aðeins um stöðu flokksins og formannsins, heldur einnig um ástæður fyrir vaxandi hrakförum krataflokka víða um Evrópu.

Bréfið ber þess merki að formanni Samfylkingarinnar finnst að sér þjarmað og svarar með því að vísa ábyrgðinni á gengi flokksins frá sjálfum sér og til flokksins í heild. Þó að skýringar Árna Páls á málinu séu yfirborðslegar þá kemst hann ekki hjá því að gagnrýna stefnu síðustu ríkisstjórnar. Sú gagnrýni rímar að nokkru leyti við sjónarmið sem komu fram innan stjórnarflokka þess tíma og því ekki hægt að segja að þau hafi ekki komið fram tímanlega til að verða að gagni.

Hvað er vinstristefna?

Ef Árni Páll ætlar að vera marktækur í sínu uppgjöri verður hann að útskýra hvers vegna ekki var hlustað á gagnrýni af þessum sama toga þegar ríkisstjórnin var að störfum og ákvarðanir voru teknar. Hann verður líka að fara dýpra og segja t.d. hvernig hefði átt að taka sér stöðu með fólki gegn fjármálakerfi. Hefði það t.d. falið í sér að reka bankana á félagslegum forsendum og taka á rót skuldavandans með því að lækka vexti húsnæðislánanna niður í næstum ekkert, í stað þess að afhenda bankana svokölluðum kröfuhöfum til að blóðmjólka fólkið og reka þúsundir þeirra fátækustu út á götu?

Vinstristefna snýst nefnilega ekki um það hve mikið betlifé má klípa út úr auðvaldinu á hverjum tíma heldur að breyta aðferðunum við að skipta gæðum samfélagsins. Það hafa aftur á móti flokkar sem kenna sig við sósíaldemókratí víðast hvar ekki þorað eða viljað. Þess í stað hafa þeir tekið að sér að velta afleiðingum kreppunnar yfir á fátæka alþýðu og tryggja að auðstéttin haldi fengnum hlut. Það er í stuttu máli innihaldið í stefnu ríkisstjórnar Samfylkingar og VG fyrir fáum árum og það sama er upp á teningnum í mörgum löndum.

Víðast hafa þessir flokkar goldið fyrir með miklu fylgistapi en þar með er ekki öll sagan sögð. Þetta kemur líka niður á heiðarlegum vinstriflokkum, sem af fullri alvöru berjast gegn alræði auðstéttarinnar og fyrir breyttu samfélagi. Vonbrigði með meinta vinstriflokka geta líka ýtt undir hvers konar fasistaflokka og aðra lýðskrumsflokka sem þrífast á glundroða, óvissu og upplausn.

Ekki einkamál Samfylkingarinnar

Sjálfsgagnrýni Árna Páls er því ekki einkamál Samfylkingarinnar heldur snertir hún alla samfélagsgagnrýni frá vinstri. Auk þess beinist gagnrýnin ekki síður að samstarfsflokknum, VG. Ef einhver er heima á þeim bæ væri auðvitað sérstök ástæða til að heyra viðbrögð þeirra við þessari gagnrýni. En athygli vekur að títtnefnt bréf hefur ekki fengið mikil viðbrögð hjá forystumönnum annarra flokka þó að boðskapur þess þyki tíðindum sæta fyrir áræði. Það á eftir að koma í ljós hvort það var skrifað af hugrekki eða í nauðvörn til að bjarga eigin skinni. Einnig á eftir að koma í ljós hvort umræðan verður málefnaleg eða snýst eingöngu um hugsanlegan eftirmann. Þegar allt um þrýtur má vísa til ummæla Óttars Proppé um áhuga fyrir R-lista ævintýri. Kannski verður R-listinn eina svarið.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×