Innlent

Krefjast þess að ljósleiðari verði hringtengdur

Stefán Árni Pálsson skrifar
visir/egill
Bæjarráð Bolungarvíkur fundaði í kvöld vegna þeirra stöðu sem kom upp í dag á Vestfjörðum en fjarskiptaþjónustan á svæðinu var að hluta úti eftir að bilun varð í stofnkerfi Mílu.

Ráðið hefur nú sent frá sér eftirfarandi ályktun:

Í ljósi þess að í dag lá fjarskiptaþjónusta Símans, þar með talið sími, nettengingar og farsímar, á Vestfjörðum niðri meira og minna í 5 klukkustundir þá vill bæjarráð Bolungarvíkur ítreka þá sjálfsögðu kröfu Vestfirðinga að ljósleiðari verði hringtengdur á Vestfjörðum.

Enginn mannlegur máttur getur komið í veg fyrir að ljósleiðarasamband rofni vegna mannlegra mistaka eða vegna ófyrirsjáanlegra atburða í náttúrunni.

Hringtenging er eina leiðin til að koma í veg fyrir að slíkir atburðir hafi veruleg áhrif á atvinnulíf og daglegt líf Vestfirðinga svo ekki sé minnst á hversu alvarlegt það er ef slíkt sambandsleysi leiðir til þess að ekki er hægt að ná sambandi við neyðarlínu eða viðbragðsaðila. Skorað er á stjórnvöld að tryggja þessa grunnþjónustu við Vestfirði með hringtengingu ljósleiðarans.


Bilunin virðist bæði hafa áhrif á netsambönd, fastlínunúmer og farsíma hjá Símanum.

Sigurrós Jónsdóttir hjá Mílu sagði í samtali við Vísi að ekki sé nákvæmlega vitað hvar bilunin sé eða hvort um sé að ræða bilun í streng eða búnaði.

„Það er ekki búið að staðsetja bilunina nákvæmlega, en þetta er á milli Reykhóla og Patreksfjarðar. Allir tiltækir aðilar á Vestfjörðum og Vesturlandi eru á leiðinni á staðinn til að staðsetja bilunina nákvæmlega. Það eru allir farnir af stað.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×