Fótbolti

Kraftur úr óvæntri átt

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Arnór Ingvi Traustason sést hér skora sigurmark sitt á móti Austurríki.
Arnór Ingvi Traustason sést hér skora sigurmark sitt á móti Austurríki. Vísir/Getty
Það var ekki lítill þáttur sem varamennirnir áttu í 2-1 sigri Íslands á Austurríki þegar liðin mættust á þjóðarleikvangi Frakka, Stade de France, á miðvikudagskvöldið.

Íslenska þjóðin sameinaðist í siguröskri á fjórðu mínútu uppbótartíma leiksins þegar Arnór Ingvi Traustason náði að koma boltanum í netið eftir sendingu Theodórs Elmars Bjarnasonar. Báðir voru varamenn í leiknum, rétt eins og Sverrir Ingi Ingason.

Þjálfararnir Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson ákváðu því að stóla á unga og fríska fætur í þessum aðstæðum. Aðrir kostir voru til að mynda reynsluboltarnir Eiður Smári Guðjohnsen og Emil Hallfreðsson sem komu báðir inn á í leiknum gegn Ungverjalandi.

Hrikalega stoltir

„Við erum hrikalega stoltir af þessum strákum,“ sagði Heimir Hallgrímsson við Fréttablaðið í gær og átti þá við alla leikmenn íslenska landsliðshópsins. Hann lofaði hugar­far leikmannanna, sem sást best á þeim þremur sem komu inn á.

„Þeir voru „kúl“ og kraftmiklir. Við þurftum ferska fætur inn á þessum tíma. Svo var sterkt að fá Sverri Inga þarna inn í teiginn þegar Austur­ríki var byrjað að dæla boltum þar inn. Hann kom með mikilvæga skalla í burtu. Við erum mjög ánægðir með þá og allan hópinn.“

Báðir jafn þreyttir

Þreytumerkin voru augljós á íslenska liðinu enda hefur byrjunar­lið Íslands verið eins alla keppnina hingað til og svo sem ekki útlit fyrir að það muni endilega breytast fyrir leikinn gegn Englandi í 16-liða úrslitunum á mánudag.

„Þeir sem komu inn á í leiknum í gær komu inn með kraft og voru klókir. Ég verð að hrósa öllum leikmönnunum, þeir vörðust vel allan leikinn og tóku vel á því frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu,“ sagði Lagerbäck í gær.

Sóknarmennirnir Jón Daði Böðvarsson og Kolbeinn Sigþórsson fóru báðir af velli í leiknum. Lagerbäck sagði að Jón Daði hefði farið fyrr af velli til að halda Kolbeini inn á eins lengi og mögulegt er.

„Kolbeinn er mjög mikilvægur í að verjast föstum leikatriðum því hann getur unnið skallaeinvígin. En þetta var 50-50 ákvörðun því þeir voru báðir jafn þreyttir,“ sagði Lagerbäck og brosti.

Fyrstu mótsleikirnir

Það má sjá hér að neðan hversu góð áhrif varamennirnir þrír höfðu á leik íslenska liðsins eftir innkomu þeirra. Þeir voru aðeins búnir að spila í samtals fjórar mínútur og 53 sekúndur áður en það kom að leiknum á Stade de France en þess ber einnig að geta að Arnór Ingvi og Sverrir Ingi voru að spila sína fyrstu mótsleiki. Þeir höfðu aðeins áður komið við sögu í vináttulandsleikjum.

En þeir sýndu að þeir geta vel staðist álagið sem fylgir því að spila á stóra sviðinu og það gæti reynst dýrmætt í leiknum mikil­væga gegn Englandi í Nice á mánudag.

Grafík/Silja Ástþórsdóttir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×