Lífið

Krabbinn: Hafðu trú á sjálfum þér

Fáeinir smáborgarar gætu reynt að hindra þig.
Fáeinir smáborgarar gætu reynt að hindra þig.
Elsku hressi Krabbinn minn. Það er svo mikill kraftur í kortinu þínu að þú verður að nýta þér hann. Það er eins og þú sért að ganga stigann að takmarki þínu og sjáir skýrt hvað þú vilt.

Ekki setjast niður og hvíla þig því þá stoppar allt. Haltu áfram og stattu við það sem þú ert búin að ákveða. Það eru margir að ýta á eftir þér því það er svo mikið af fólki sem elskar þig og þú ert sólin þeirra.

Fáeinir smáborgarar gætu reynt að hindra þig en mundu bara að smáborgarar eru vælufólkið sem sér bara hið neikvæða.

Borðaðu sjálfstraust í morgunmat og trúðu því að þú getir og þá ertu kominn hálfa leið. Þú verður öfundaður en orð þeirra sem öfunda særa þig ekki nema þú trúir þeim. OK?

Þú ert fullur af ástríðu en þér gæti líka dottið í hug að hanga í sambandi sem er ekkert að gefa þér. Svo annaðhvort breyttu því og hættu í sambandinu eða lagaðu það. Þeir sem eru á lausu þurfa fyrst og fremst að skoða það að ná sér í skemmtilega manneskju.

Mottó: Ég elska að hanga með mér og ég trúi á það sem ég er að fara að gera.

Frægir Krabbar: Bryndís Schram, Sigga Lorange Ostabúðarskvísa, Auddi Blö, sem við elskum öll, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og dúlla, Ólafur Stefánsson, handboltakappi og heimspekingur, Edda Sif, Sindri Sindrason, Ásdís Halla Bragadóttir, Hjörvar Hafliðason.


Tengdar fréttir

Vogin: Allt á sér ástæðu

Elsku kjarkmikla Vog. Það er ekki hægt að segja að allt hafi farið nákvæmlega eins og þú ætlaðir þér.

Sporðdreki: Ekkert getur stoppað þig

Elsku Sporðdreki. Það má líkja þér við fuglinn Fönix. Það er alveg sama hvaða erfiðleikum þú lendir í, þú finnur þér alltaf leið út úr þeim.

Hrútur: Láttu heyrast í þér

Elsku aflmikli Hrúturinn minn. Lífið er í raun auðvelt en það erum við sjálf sem flækjum það.

Steingeit: Ekki stjórnast af áliti annarra

Elsku karaktermikla Steingeit. Það þarf að vera myrkur til þess að stjörnurnar sjáist og þú ert búin að hafa regnbogann sem þitt tilfinningalitróf. Það er svo margt sjaldgæft í lífinu, til dæmis ástin.

Nautið: Segðu já við hinu óvænta

Elsku hjartans Nautið mitt. Ekki deyja áður en þú lifir. Þetta ættu að vera einkunnarorðin þín því þú gætir allt eins farið hálfdautt í gegnum lífið ef þú sprengir ekki þægindarammann utan af þér.

Meyjan: Taktu áhættu

Elsku góðhjartaða Meyja. Haustið er þinn tími. Þú skalt nýta þér það að þú ert farin að sjá hvernig þú kemur þér út úr þeim erfiðleikum sem þú hefur áhyggjur af. Þú ert að taka áhættu sem reddast á síðustu stundu.

Vatnsberi: Hafðu gaman af því sem þú gerir

Elsku fallegi Vatnsberi. Mundu að þeir sem haga sér of vel skrifa yfirleitt ekki mannkynssöguna! Og árangur þinn felst ekki í því að hafa allt fullkomið heldur því að hafa gaman af því sem þú gerir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×