Skoðun

Krabbameinsvaldandi drykkir í matvörubúðir?

Lára G. Sigurðardóttir skrifar
Stuðningsmenn áfengisfrumvarpsins sem nú liggur fyrir Alþingi virða að vettugi viðvaranir sérfræðinga og halda því fram að sala á áfengi í matvöruverslunum snúist um að treysta fólki. Þeir viðurkenna samt þá staðreynd að áfengisneysla muni aukast meðal þjóðarinnar enda eru allar rannsóknir sem styðja það. Þeir vita því að bæði fullorðnir og börn munu innbyrða meira af áfengi og þar af leiðandi meira af krabbameinsvaldandi efni.

Áfengi orsök krabbameina

Hvort sem okkur líkar betur eða verr þá þurfum við að horfast í augu við þá staðreynd að áfengi er skilgreint af Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) sem þekkt krabbameinsvaldandi efni. Ekkert efni fær þessa skilgreiningu nema óyggjandi vísbendingar og fjöldi rannsókna liggi að baki. Áfengi hefur verið tengt aukinni áhættu að fá krabbamein í höfuð, háls, vélinda, maga, lifur, brjóst, eggjastokka, ristil og endaþarm.

Fjölgun krabbameinstilfella boðuð

Stuðningsmennirnir eru með orðum sínum að senda þau skilaboð að það sé kominn tími til að auka áfengisdrykkju og framboð á krabbameinsvaldandi efni í matvörubúðum. Með orðum sínum og frumvarpi stefna þeir að því að auka tíðni krabbameina hjá þjóðinni.

Þvert á stefnu velferðarráðuneytisins

Til allrar hamingju hefur Alþingi sett lög og stjórnvöld sett reglugerðir um áfengi vegna þekkingar okkar á skaðsemi þessa vímuefnis. Í stefnu velferðarráðuneytisins í áfengis- og vímuvörnum til ársins 2020 stendur orðrétt: Skaðleg neysla áfengis og annarra vímugjafa hefur alvarleg áhrif á lýðheilsu og er einn af helstu áhættuþáttum fyrir slæmri heilsu, ótímabærum dauðsföllum í aldurshópnum 25–29 ára og þróun langvinnra sjúkdóma eins og ákveðinna tegunda krabbameina og hjarta- og æðasjúkdóma. Einnig segir þar að yfirmarkmið stefnunnar sé að takmarka aðgengi að áfengi. Stefna þessi var kynnt í desember 2013, en Kristján Þór Júlíusson tók við ráðherraembætti í maí sama ár. Það er því óskiljanlegt að fjármálaráðherra og þingmenn gangi þvert á þá stefnu sem hér er vitnað til og sem hefur hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi, og taki ekki mark á vönduðum rannsóknum.

Slæm vinnubrögð

Svo virðist sem stuðningsmennirnir láti sig lítt varða heilsu og líðan þjóðarinnar. Frá læknisfræðilegu- og lýðheilsusjónarmiði gerast þeir þingmenn sem taka afstöðu með áfengisfrumvarpinu sekir um óviðunandi vinnubrögð því allir þeir sérfæðingar á sviði heilbrigðismála sem gefið hafa álit sitt hafa varað við afleiðingunum. Ef þetta frumvarp verður samþykkt þá verður stigið eitt stærsta skref afturábak í forvarnarmálum á Íslandi. Er það stefna þingmanna á Alþingi Íslendinga í dag?

1Listi WHO yfir krabbameinsvaldandi efni: http://mono­graphs.iarc.fr/ENG/Classification/latest_classif.php

2Samantekt yfir tengsl áfengisneyslu og krabbameinsáhættu: http://pubs.niaaa.nih.gov/publications/arh25-4/263-270.htm

3Stefna í áfengis- og vímuvörnum til ársins 2020 (Desember 2013): http://www.velferdarraduneyti.is/media/rit-og-skyrslur-2014/Stefna-i-afengis--og-vimuvornum-desem­ber-2013.pdf




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×