Skoðun

Komum til dyranna eins og við erum klædd

Hörður Harðarson skrifar
Á dögunum vakti ég athygli á mikilvægi þess að fjölbreytt atvinnustarfsemi fái að þrífast hér landi. Líta þurfi til hagsmuna neytenda frá viðara sjónarhorni en vöruverði eingöngu. Þó mögulegt sé að kaupa vörur í erlendum netverslunum á lægra verði en býðst hér á landi þá þjónaði það betur hagmunum íslenskra neytenda að skipta við innlendar verslanir vegna þeirra heildaráhrifa sem það hefði á hagkerfið. Sagði ég að sömu rök eiga við um íslenskan landbúnað. Við getum, ekki frekar en verslunin, keppt við aðila í löndum þar sem laun eru umtalsvert lægri en hér.

Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, Ólafur Stephensen, brást við grein minni og sagði enginn rök vera fyrir stuðningi stjórnvalda við innlendan svínabúskap með því að leggja tolla á innfluttar kjötafurðir. Hann virðist því hafa horft framhjá þeirri röksemd að landbúnaður væri mikilvægur þáttur í íslensku hagkerfi með öllum þeim störfum og afleiddri veltu sem hann skilar.

Neikvæð mynd

Þá ruglar Ólafur saman ýmsum atriðum í þeim ásetningi sínum að draga upp neikvæða mynd að íslenskum svínabændum sem hann segir stunda búsakap í „fáeinum umsvifamiklum fyrirtækjum í stórum iðnaðarskemmum, mest á innfluttu fóðri“. Íslenskur svínabúskapur fer að mestu fram á fjölskyldubúum og yrði líklega skilgreindur sem heimilisbúskapur í samanburði við þau bú sem Ólafur vill að mögulegt verði að flytja inn kjöt frá. Má nefna í þessu sambandi að Ríkissjónvarpið sýndi nýlega sláandi heimildarmynd um grísaflutninga innan Evrópusambandsins þar sem allri dýravelferð er fórnað fyrir hagræðissjónarmið. Þá er rétt að fram komi að hlutfall innlends fóðurs í svínabúskap á Íslandi hefur aukist verulega á undanförnum árum og eru grísir á nokkrum svínabúum að verulegu leyti aldir á innlendu korni og má búast við að það aukist enn frekar á næstu árum.

Hagsmunasamtök í verslun og innflutningi hafa að undanförnu beitt sér gegn í íslenskum landbúnaði í opinberri umræðu undir því yfirskyni að þeir séu að gæta hagsmuna neytenda. Félag atvinnurekenda og Samtök verslunar- og þjónustu starfa ekki með hagsmuni neytenda í fyrirrúmi heldur er tilgangur þeirra að gæta hagsmuna umbjóðenda sinna. Því þarf að hafa það í huga þegar fulltrúar þeirra tjá sig um landbúnað að umbjóðendur þeirra vilja auka arðsemi sína með því að flytja inn vöru af svæðum þar sem laun og aðbúnaður dýra er langt undir þeim viðmiðum er við höfum hér á landi. Þeir sem hafa beina peningalega hagsmuni af þessu eiga því að koma til dyranna eins og þeir eru klæddir fremur en að látast vera sérstakir varðmenn neytenda.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×