Glamour

Kom klædd eins og Carrie Bradshaw

Ritstjórn skrifar
Leikkonan Sarah Jessica Parker er þekkt fyrir að vera yfirleitt flott klædd en þegar hún mætti til að taka á móti verðlaunum á Accessories Council Excellence Awards fyrir stuttu minnti fataval hennar óneitanlega á eina smekkdömu af skjánum sem við þekkjum flestar en enginn betur er Sarah Jessica, Carrie Bradshaw úr Sex and the City. 

Hvítur síðkjóll með pífum parað saman við kóngabláa (og himinháa) hæla með satínborðum, sem væntanlega eru úr hennar eigin skólínu. Leikkonan fékk einmitt verðlaun fyrir skólínuna sína. 

Mjög fallega valið hjá leikkonunni, sem við getum ekki beðið eftir að sjá aftur á skjánum í haust eða ætli Patricia Fields, búningarhönnuður SATC, hafi hjálpað?


Tengdar fréttir

Völdu buxur fram yfir kjól

Lena Dunham, Alexa Chung og Sarah Jessica Parker voru töffaralega innan um síðkjólana.






×