Glamour

Arket frá H&M lofar góðu

Ritstjórn skrifar
Mikil eftirvænting er fyrir nýjasta merkinu frá H&M keðjunni, Arket, sem mun opna 18 verslanir víðs vegar um heiminn síðar á þessu ári.

Talsmenn H&M hafa sagt að verslunin mun i vera í ætt við lífstílsverslanir þar sem ekki einungis verður seldur fatnaður heldur líka vörur fyrir heimilið, matur og svo verður kaffihús inn í búðinni. 

Á dögunum komu myndir frá fyrstu línu Arket og það er ekki hægt að segja annað en þetta lofar góðu. Þetta eru einfaldar flíkur í bland við hönnunarflíkur þar sem skandinavíski stílinn fær að njóta sín. 

Við erum allavega spennt fyrir þessari nýju fjöður í hatt H&M veldisins. Hér er smá sýnishorn af því sem koma skal. 

First collection preview. Royal Geographical Society, 1 Kensington Gore, London. 2 June 2017. #ARKET

A post shared by ARKET (@arketofficial) on






×