Fótbolti

Kolbeinn tryggði Ajax stig

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kolbeinn var á skotskónum í dag.
Kolbeinn var á skotskónum í dag. vísir/getty
Kolbeinn Sigþórsson tryggði Ajax stig gegn PEC Zwolle í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Jesper Drost kom Zwolle yfir á 48. mínútu og þannig var staðan fram á 89. mínútu þegar Kolbeinn jafnaði metin með skoti af stuttu færi eftir hornspyrnu. Íslenski landsliðsmaðurinn kom inn á sem varamaður á 62. mínútu.

Þetta var sjöunda mark Kolbeins í hollensku deildinni í vetur.

Þetta var þriðja jafntefli Ajax í síðustu fjórum leikjum. Liðið er í 2. sæti deildarinnar með 67 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×