Fótbolti

Klose ætlar að enda ferilinn í Þýskalandi

Klose í leik með Lazio.
Klose í leik með Lazio.
Þýska goðsögnin Miroslav Klose er farinn að undirbúa lok knattspyrnuferilsins enda orðinn 35 ára gamall.

Klose spilar með ítalska liðinu Lazio og er enn að raða inn mörkum. Hann stefnir á að ljúka landsliðsferlinum á HM á næsta ári.

Klose á aðeins eftir að skora eitt mark til þess að jafna markamet Gerd Müller sem er 68 mörk. Hann á líka aðeins eitt mark í jafna markamet Ronaldo á HM sem er 15 mörk.

Markahrókurinn stefnir svo á að yfirgefa Ítalíu næsta sumar og koma heim til Þýskalands þar sem hann ætlar að ljúka ferlinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×