Fótbolti

Kjartan Henry í liði umferðarinnar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kjartan Henry er næstmarkahæsti leikmaður Horsens á tímabilinu.
Kjartan Henry er næstmarkahæsti leikmaður Horsens á tímabilinu. vísir/getty
Kjartan Henry Finnbogason, leikmaður Horsens, er í liði umferðarinnar í dönsku úrvalsdeildinni hjá Tipsbladet.

Kjartan Henry kom Horsens á bragðið í 3-0 sigri á AaB á föstudaginn. Hann vippaði boltanum þá smekklega yfir Nicolai Larsen, markvörð AaB. Kjartan Henry lagði einnig upp annað mark Horsens í leiknum.

Þetta var sjötta mark Kjartans Henrys í dönsku deildinni á tímabilinu. Framherjinn hefur spilað 20 leiki en aðeins sjö sinnum verið í byrjunarliðinu. Hann er næstmarkahæsti leikmaður Horsens á tímabilinu.

Horsens á tvo fulltrúa í liði 21. umferðar hjá Tipsbladet en auk Kjartans Henrys er miðjumaðurinn Mathias Nielsen í liðinu.

Nýliðar Horsens eru í 7. sæti deildarinnar með 27 stig og eiga góða möguleika á að komast í úrslitakeppnina um titilinn. Þangað komast sex efstu lið deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×