Innlent

Kjarasamningar halda ef aðrar stéttir hækka ekki úr hófi

Sveinn Arnarsson skrifar
SALEK-samkomulaginu var bjargað fyrir horn, að sinni allavega, þegar forysta Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnu­lífsins skrifuðu undir samkomulag sem frestar endurskoðun kjarasamninga um ár.
SALEK-samkomulaginu var bjargað fyrir horn, að sinni allavega, þegar forysta Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnu­lífsins skrifuðu undir samkomulag sem frestar endurskoðun kjarasamninga um ár. Vísir/Anton Brink
Kjarasamningi SA og ASÍ verður ekki sagt upp að sinni þótt forsendur fyrir honum séu brostnar. Það er sameiginlegt mat aðila að heppilegra sé að bíða og sjá hvernig þróunin verður hjá öðrum stéttum á árinu en samningar margra stétta renna út á þessu ári.

Það er mat ASÍ og SA að tvær af þremur forsendum kjarasamningsins haldi en ein þeirra sé brostin. Hún snúist um launaþróun annarra hópa á samningstímanum. „Við viljum sýna smá yfirvegun á þessum tímapunkti. Samningurinn er uppsegjanlegur að ári liðnu en við vonum að rammasamkomulag frá árinu 2015 haldi. Nú er boltinn hjá ríki og sveitarfélögum,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. „Varðandi kjararáð þá er það augljós krafa okkar að það rammasamkomulag sem skrifað var undir við hið opinbera eigi einnig við þá sjálfa.“

Þann 27. október 2015 gerðu ASÍ, BSRB, SA, ríkið, Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg rammasamkomulag um breytt og bætt vinnubrögð við gerð kjarasamninga og sameiginlega launastefnu til ársloka 2018. ASÍ og SA óska þess að menn standi við það samkomulag.

„Við gerum ekki kröfu um annað á þessari stundu en að aðilar rammasamkomulagsins frá 2015 standi við gefin loforð. Ef það er gert og launaþróun helst innan þess ramma sem lagt var upp með í upphafi fellur úr gildi uppsagnarákvæði samningsins og hann heldur út árið 2018,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, formaður SA.

Ólafur Loftsson, formaður grunnskólakennara, segir ekki hægt að stilla grunnskólakennurum svona upp við vegg. Samninganefnd þeirra semji um laun óháð því hvað aðrar stéttir séu að gera. Þetta samkomulag hafi þannig ekkert að segja þegar grunnskólakennarar semja um sín laun. „Við erum ekki aðilar að rammasamkomulaginu frá 2015 og því hefur þetta ekki áhrif á okkar samningagerð,“ segir Ólafur. „Grunnskólakennarar semja um sín laun við samninganefnd sveitarfélaga án aðkomu ASÍ og SA.“

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir

Forsendur samninga brostnar að mati ASÍ

Ríkissáttasemjari telur að fram undan geti verið erfitt ár. Forseti ASÍ segir forsendur kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins brostnar. Sammála um að ákvörðun um launahækkun þingmanna og ráðherra hafi verið olía á eldinn.

SALEK bjargað fyrir horn en ríkið varað við stöðunni

SALEK samkomulaginu var bjargað fyrir horn, að sinni alla vega, þegar forysta Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins skrifuðu undir samkomulag í dag sem frestar endurskoðun kjarasamninga um ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×