Innlent

Kjararáð hækkar laun æðstu embættismanna ríkisins

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Frá aðgerðum BHM þegar félagið stóð í kjaradeilum við ríkið í fyrra.
Frá aðgerðum BHM þegar félagið stóð í kjaradeilum við ríkið í fyrra. Fréttablaðið/Stefán
Laun til æðstu embættismanna og þjóðkjörinna fulltrúa, sem undir kjararáð heyra, hækka öll um minnst 7,15 prósent með ákvörðun ráðsins í júní.

Eftir hækkunina er forseti Íslands með tæpar 2,5 milljónir króna í laun. 

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, er launahæstur þeirra sem heyra undir kjararáð og eru ekki þjóðkjörnir. Mánaðarlaun Harðar eru rúmar 2 milljónir króna.

Með nánast sömu laun er Markús Sigurbjörnsson, forseti Hæstaréttar.

Þá kemur Már Guðmundsson, með ríflega 1,9 milljónir króna.

Listi yfir fimmtán launahæstu embættismennina er á síðu 4 í Fréttablaðinu í dag og hlekkur á fréttina á Vísi.is hér að neðan.

Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM
Laun ráðuneytisstjóra og næstráðenda þeirra hækka sérstaklega um tugi prósenta með vísan í auknar kröfur í starfi. Ráðuneytisstjórinn í forsætisráðneytinu, Ragnhildur Arnljótsdóttir, er nú með hærri laun en forsætisráðherra.

Kjararáð vísar til þess að í ákvörðun gerðardóms í ágúst í fyrra um kjör að­ildar­félaga BHM hafi verið ákvæði um 5,5 prósenta hækkun launa og 1,65 prósenta viðbótarhækkun um síðustu mánaðamót. Ráðinu beri að bregðast við verði verulegar breytingar „á þeim launum í þjóðfélaginu sem höfð skulu til viðmiðunar“.

Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM, segir þetta endurspegla að vond ákvörðun hafi verið að setja lög á kjaradeilu átján aðildar­félaga BHM og færa í gerðardóm. Kröfur um að menntun yrði metin til launa hafi verið málefnalegar og ríkið átt að geta samið við félagið.

Aðrir á vinnumarkaði hafi gert niðurstöðu gerðardóms að sinni.

„Þess vegna hefur niðurstaða baráttunnar sem BHM stóð fyrir á síðasta ári smurst yfir samfélagið. Það var aldrei tilgangur okkar,“ segir Þórunn sem kveðst ekki gera athugasemd við ákvörðun kjara­ráðs sem væntanlega starfi lögum samkvæmt.

Fyrirkomulagið sé hins vegar gamaldags og mögulega sé kominn tími til að endurskoða það með einhverjum hætti, svo sem með tilliti til þess hversu margar stéttir heyri undir rðið.



Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 1. júlí 2016


Tengdar fréttir

Embættismenn fá 7,15 prósent hækkun

Laun forsætisráðherra hækka um tæpar 109 þúsund krónur á mánuði en laun ráðuneytisstjóra hans eru þó orðin hærri eða ríflega 1,8 milljónir. Kjararáð lítur til ákvæðis í gerðardómi um laun félaga í BHM í ágúst í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×