Innlent

Kjaradeilur: Bændasamtökin krefjast aðgerða strax

Atli Ísleifsson skrifar
Bændasamtökin segja stöðuna alvarlegasta í alifugla- og svínarækt.
Bændasamtökin segja stöðuna alvarlegasta í alifugla- og svínarækt. Vísir/Hari
Bændasamtökin sendu í dag bréf til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra þar sem þau lýsa því ástandi er komið upp vegna vinnudeilu BHM og ríkisins. Í ályktun frá samtökunum er aðgerða krafist strax. „Samtökin leggja þunga áherslu á að ráðherra geri allt sem í hans valdi stendur til að stuðla að lausn deilunnar enda ber hann ábyrgð á framkvæmd laga um velferð dýra.“

Samtökin segja stöðuna alvarlegasta í alifugla- og svínarækt „þar sem að engin heilbrigðiskoðun [geti] átt sér stað á meðan verkfall dýralækna hjá Matvælastofnun stendur yfir. Vegna þessa er velferð dýranna ógnað þar sem að þéttleiki í eldishúsum er kominn yfir leyfileg mörk. Þá hefur lausafjárstaða búanna versnað hratt, þar sem þau koma ekki kjöti á markað sem aftur dregur fljótt úr getu þeirra til að kaupa fóður og önnur nauðsynleg aðföng til að sinna dýrunum. Verkfallið getur hreinlega knúið sum þeirra í gjaldþrot og valdið mikilli röskun á kjötframleiðslu í landinu, langt umfram þann tíma sem verkfallið sjálft mun standa.

Af þessu tilefni sendu Bændasamtökin í dag bréf til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra þar sem hinu grafalvarlega ástandi er lýst og aðgerða krafist strax vegna þessa neyðarástands. Samtökin leggja þunga áherslu á að ráðherra geri allt sem í hans valdi stendur til að stuðla að lausn deilunnar enda ber hann ábyrgð á framkvæmd laga um velferð dýra.

Þá hefur fulltrúi Bændasamtakanna í fagráði um velferð dýra farið fram á að ráðið verði nú þegar kallað saman til að fjalla um um þessa alvarlegu stöðu. Ráðið starfar samkvæmt lögum um velferð dýra og er meðal annars ætlað að að fylgjast með þróun dýravelferðarmála og upplýsa Matvælastofnun um mikilvæg málefni á sviði velferðar dýra,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir

Formaður VR óttast lög á verkfallið

Formaður Samtaka atvinnulífsins segir að verkalýðshreyfingin geti knúið „hvaða vitleysu“ í gegn í krafti verkfalla sem hún kýs að gera.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×