Fótbolti

Keðjureykjandi þjálfari Napoli fékk sitt eigið reykherbergi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Sarri á erfitt að slíta sig frá sígóinu.
Sarri á erfitt að slíta sig frá sígóinu. vísir/afp
Það fór ekkert sérstaklega illa um Maurizio Sarri, þjálfara Napoli, er hann stýrði sínum mönnum gegn RB Leipzig í Þýskalandi í kvöld.

Sarri strompreykir og kemst ekki af í margar mínútur án þess að fá sér smók. Napoli sendi fyrirspurn á Leipzig hvort félagið gæti aðstoðað þjálfarann við að reykja í friði á heimavelli þeirra.





Leipzig tók mjög vel í bón Napoli-manna og græjaði lítið reykherbergi fyrir þjálfarann í búningsklefa gestanna. Þar gat Sarri keðjureykt fyrir og eftir leik. Hér að ofan má sjá reykherbergið.

Það var ekki bara að þjálfarinn fengi sérherbergi heldur var nuddbekk hent þar inn svo þjálfarinn gæti látið fara verulega vel um sig í reykingunum. Þetta er meiri íþróttaandinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×