Innlent

Kaupmenn sem hafa lækkað verð á fatnaði undrast umræðu um enga lækkun

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Vörur hafa lækkað mismikið í verði samkvæmt könnunum Samtaka þjónustu og verslunar. Skór hafa almennt lækkað mest.
Vörur hafa lækkað mismikið í verði samkvæmt könnunum Samtaka þjónustu og verslunar. Skór hafa almennt lækkað mest. visir/vilhelm
Kaupmenn sem sannarlega hafa lækkað verð á vörum eftir tollaniðurfellingu á fatnaði og skóm undrast niðurstöður kannanna Hagstofunnar sem sýna fram á að vörur hafi ekki lækkað í verði í samræmi við niðurfellinguna.

Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu minnir á að tollaniðurfelling skili sér ekki í vörulækkun á öllum vörum.

„Það er mjög mikilvægt í þessari umræðu að halda því til haga að allt að 65% af fötum og skóm voru þegar án tolla þegar hin almenna tollaniðurfelling tók gildi síðustu áramót. Þetta gleymist oft í umræðunni og raunar hef ég grun um að sumir haldi þessu ekki fram með vilja. En þetta er lykilatriði,“ segir Andrés Magnússon.

Markaðsstjóri Bestseller segir umfjöllun um að verð lækki ekki koma þeim í opna skjöldu.

„Við hjá Bestseller lækkuðum allt verð hjá okkur frá 1. janúar. Það er leiðinlegt að svona umfjöllun fari af stað þegar við stöndum við okkar loforð, sem var að lækka allt verð, á vörum sem framleiddar eru utan Evrópu, um fimmtán prósent,“ segir Lovísa Anna Pálmadóttir.

En vörur hafa sannarlega lækkað mismikið í verði. Samtök verslunar og þjónustu hafa gert sínar kannanir á verðþróuninni.

„Það sem vekur athygli og áhyggjur hjá okkur er að það er munur á verðþróun á skóm annars vegar og fatnaði almennt hins vegar. Við lögðum áherslum við okkar félagsmenn, kaupmenn, að þessu yrði skilað til neytenda. Almennt hafa skór lækkað eins og búist var við en það sama verður ekki sagt um annan fatnað. Því miður,“ segir Andrés.  

Lovísa segir mikilvægt að kaupmenn séu samtaka í verðlækkunum.

Auðvitað ætti það að vera það því þetta er gríðarlega stórt skref fyrir okkur og við höfum beðið eftir þessu. Bæði sem verslunareigendur til að fá tækifæri til að vera samkeppnishæf en líka fyrir neytendur að njóta betri verða,“ segir hún.


Tengdar fréttir

Fataverð ekki lækkað í takt við afnám gjalda

Fata- og skóverð hefur lækkað mun minna en sem nemur afnámi tolla og styrkingu krónunnar á síðasta ári. Varaformaður Neytendasamtakanna segir þetta vonbrigði. Hann segir afnám tolla ekki hafa átt að skila sér í vasa kaupmanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×