Innlent

Katrín: Stjórnmálamenn hafa val um að byggja múra eða byggja brýr

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Katrín Jakobsdóttir, formaður VG.
Katrín Jakobsdóttir, formaður VG. Vísir/Ernir
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri hreyfingarinnar, sagði á Alþingi í kvöld að stjórnmálamenn hefðu val um hvernig bregðast skyldi við vaxandi gjá milli ólíkra hópa í samfélögum vestan hafs og austan.

„Stjórnmálamenn geta nefnilega gert hvorttveggja. Þeir geta byggt múra eða þeir geta byggt brýr. Ég segi að við eigum að byggja brýr,“ sagði Katrín í ræðu sinni á Alþingi þar sem nú fara fram umræður um stefnuræðu forsætisráðherra en umræðurnar má sjá í beinni útsendingu hér.

Katrín sagði að til þess að byggja brýr í stað múra þyrfti hins vegar að takast á við stór verkefni. Tryggja þyrfti jöfnuð og félagslegan stöðugleika, tryggja aðgerðir gegn loftslagsbreytingum og hlýnun jarðar. Þá þyrfti að undirbúa íslenskan vinnumarkað undir tækniþróun sem gæti gerbreytt honum, hér sem annarsstaðar.

Sagði Katrín að slík verkefni kölluðu á „raunverulegar kerfisbreytingar“ en að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Bjartrar framtíðar og Viðreisnar væri ekki ríkisstjórn utan um slíkar breytingar.

„Það segir sína sögu að hæstvirtur forsætisráðherra ákvað að vitna í Tómas Guðmundsson og kvæði hans frá fjórða áratug síðustu aldar. Stjórnarsáttmálinn er í besta 1920-stíl og undirritaður af þremur karlmönnum þrátt fyrir batnandi kynjahlutföll á þingi,“ sagði Katrín

Gagnrýndi hún ríkisfjármálastefnu nýrrar stjórnar og sagði Katrín að hún væri íhaldssöm.

„Ætlunin er að fresta nauðsynlegri eflingu velferðar- og menntakerfis. Það á ekki að byggja meira upp en rúmast innan hagsveiflunnar. Það má alls ekki afla tekna til að byggja upp aðþrengt velferðarkerfi, heilbrigðiskerfi og menntakerfi,“ sagði Katrín.

Benti hún á að allir ættu að geta sameinast um að byggja brúr, jafnvel þótt að menn væru ósammála um margt annað.

„Á hverjum degi hittum við brúarsmiði. Strætóstjórinn sem heilsar öllum og minnir mann á að öll njótum við virðingar í bílnum hans. Leikskólakennarinn sem leysir úr vanda ólíkra barna með ólíkan bakgrunn. Fólk sem hingað kemur frá öðrum löndum, jafnvel á flótta, en kennir okkur hér svo ótal margt og gerir líf okkar fjölbreyttara og betra. Þjóðarleiðtogar sem auka skilning milli ólíkra þjóða. Þingflokksformenn sem leysa hnúta en herða þá ekki. En við hittum líka þá sem smíða múra. Sem alltaf vilja loka sig inni og breyta engu. Og nú er það eitt mikilvægasta verkefni stjórnmálanna að leggja brúarsmiðunum lið óháð því hvar við stöndum í flokki. Ég vona að það geti í það minnsta orðið okkar sameiginlega verkefni.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×