Innlent

Katrín: „Ríkisstjórnin eigi stundum að fara út fyrir 101 Reykjavík”

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra að loknum fundi ríkisstjórnarinnar með sveitarstjórnafulltrúum á Vesturlandi sem fram fór að Langaholti í Snæfellsbæ í dag.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra að loknum fundi ríkisstjórnarinnar með sveitarstjórnafulltrúum á Vesturlandi sem fram fór að Langaholti í Snæfellsbæ í dag.
Ríkisstjórnin kom saman til fundar í Langaholti í Snæfellsbæ í dag og þá var settur í loftið nýr þjónustuvefur fyrir almenning.

„Það er eiginlega ákvörðun mín að ríkisstjórnin eigi stundum að fara út fyrir 101 Reykjavík að funda og það var okkar niðurstaða að funda hér á þessum sólríka og fallega degi,” sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í samtali við fréttastofu að fundi loknum með fulltrúum sveitarstjórna á Vesturlandi.

„Við fengum aðeins að heyra hvað brennur mest á þeim,” segir Katrín. Farið hafi verið um víðan völl en samgöngumál, landbúnaður og umhverfismál voru meðal annars ofarlega á baugi.

Á undan fundinum með fulltrúum sveitarstjórna fór fram hefðbundinn ríkisstjórnarfundur þar staða vinnu starfshóps um endurskoðun eignarhalds á bújörðum og kaup útlendinga á jarðnæði á Íslandi voru meðal annars til umræðu.

Þá kynnti Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitastjórnaráðherra” nýjan vef til sögunnar, svokallað þjónustukort. „Hugmyndin er að setja á laggirnar svona vefsjá þar sem að annars vegar almenningur getur séð þjónustu, bæði hins opinbera og líka einkaaðila, hvað er í boði á tilteknu landsvæði,” segir Sigurður Ingi.

„En fyrir okkur stjórnvöld, ríki og sveitarfélög, þá er þetta líka tæki til þess að sjá á myndrænan hátt hvaða þjónusta er í boði, hvaða þjónustu vantar í samanburði við önnur svæði og geta þá brugðist við, til dæmis í byggðaáætlunum eða öðrum slíkum verkefnum.” Fyrsti áfangi vefsjárinnar fór í loftið í dag en ætlunin er að þar verði í framtíðinni hægt að nálgast upplýsingar um nær alla þá þjónustu sem í boði er á hverju svæði. „Það þarf oft á tíðum að breyta aðgenginu að upplýsingunum til að geta nýtt þær,” segir Sigurður Ingi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×