Tíska og hönnun

Karl Lagerfeld-dúkkan seldist upp á nokkrum klukkutímum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Barbie-dúkkan sem er sköpuð til að líkjast tískumógúlnum Karl Lagerfeld fór í sölu í gærmorgun á vefsíðunni Net-a-Porter. Áður en dagurinn var allur var dúkkan uppseld.

999 dúkkur seldust á síðunni og kostar hver þeirra 135 pund, tæplega 27 þúsund krónur. 

Dúkkan var framleidd af Mattel í takmörkuðu upplagi en þeir sem þrá dúkkuna geta kíkt á uppboðssíðuna eBay. Þar eru einhverjir sem eru tilbúnir til að selja sína en verðið getur farið upp í meira en þrjú þúsund dollara, rúmlega 350 þúsund krónur.

Dúkkan er afar smart enda er hún klædd alveg eins og Karl Lagerfeld, í svörtum, aðsniðnum jakka, hvítri skyrtu og svörtum gallabuxum.

Karl Lagerfeld.

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×