Skoðun

Kári og forgangsmálin

Elín Hirst skrifar
Hvaða mál eru það sem standa Íslendingum næst? Mér sýnist frábært framtak Kára Stefánssonar með undirskriftasöfnun sinni sýna og sanna að það eru heilbrigðis- og velferðarmálin sem fólkið í landinu vill að stjórnvöld leggi nú megináherslu á. Ég er reyndar ekki endilega sammála Kára um að það eigi að miða framlag til heilbrigðismála við einhverja tiltekna prósentu af vergri þjóðarframleiðslu. Vel getur verið að það þurfi jafnvel að setja meira í uppbyggingu heilbrigðiskerfisins um nokkurra ára skeið til þess endurreisa það. Því skal haldið til haga að ríkisstjórnin hefur aukið framlög verulega til heilbrigðiskerfisins og velferðarmála á þessu kjörtímabili, en það er þó greinilegt að það er hávær krafa um að gert verði enn betur. Á þessar raddir kjósenda verður ríkisstjórnin að hlusta.

Það er afar mikilvægt að stjórnmálamenn hafi góða tilfinningu fyrir því hvernig þjóðarhjartað slær hverju sinni og leggi við hlustir. Forystumenn þjóðarinnar verða því að vera í góðu sambandi við almenning í landinu og aldrei hefur það verið eins auðvelt og nú eftir að samfélagsmiðlarnir urðu eins sterkir og raun ber vitni. Ríkisstjórninni hefur tekist að leysa mörg erfið verkefni eins og skuldaleiðréttinguna, afnám fjármagnshafta og að koma á stöðugleika í efnahagslífinu þar sem nú er mikill vöxtur og ríkissjóður er rekinn réttum megin við núllið.

En ríkissjóður er ekki botnlaus. Ekki viljum við skuldsetja okkur meir en nú er, þar sem 80 milljarðar fara í vexti á ári. Þetta eru algerir blóðpeningar. Mikilvægt er því að einbeita sér að því að lækka vaxtakostnaðinn með niðurgreiðslu skulda eins og fjármálaráðherra er að gera. Þá skapast augljóslega svigrúm. En einhvers staðar verður að taka þá peninga sem við viljum leggja af mörkum til heilbrigðis- og velferðarmála. Enn fremur verðum við velja. Á til að mynda að fresta jarðgangagerð, fresta kaupum á nýjum Herjólfi svo dæmi sé tekið og gera öflugra átak í að skera niður ríkisútgjöld? Það verður að vera breið sátt um það hvaðan þeir peningar eiga að koma sem þarf í endurreisn heilbrigðiskerfisins. Svo ríkan vilja stórs hluta þjóðarinnar sem hefur lagt undirskriftasöfnun Kára lið verður að virða. Vinnum saman að því að finna lausnina, en vilji er allt sem þarf.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×