Erlendir aðilar kanna möguleika fyrir heilsuhótel á Kjalarnesi Garðar Örn Úlfarsson skrifar 28. maí 2016 07:00 Nesvík er fremst fyrir miðju á myndinni. Ofar sést í Vesturlandsveg og byggðina á Kjalarnesi. Mynd/Google Earth Pro „
Það er búið að sigta þennan stað út sem áhugaverðan og þeir hafa aflað sér kaupréttar á honum,“ segir Haraldur Flosi Tryggvason, lögmaður erlendra aðila sem skoða nú byggingu 100 til 200 herbergja heilsuhótels í Nesvík á Kjalarnesi. Um er að ræða 40 hektara spildu sem Lýsing eignaðist í Nesvík á árinu 2012. Á skikanum er félagsheimili sem Starfsmannafélag Loftleiða átti og lítil sumarbústaður úr eigu fjölskyldu sem átti landið í upphafi. „Kunnugir segja að Nesvík sé magnaður og sérstakur staður með útsýni yfir flóann á Reykjavík. Þar sé líka skjólsælla heldur en undir fjallinu,“ lýsir Haraldur aðstæðum á fyrirhuguðum byggingarstað. Haraldur segir að hugmyndir um verkefnið séu enn á frumstigi og ómótaðar. „En það er verið að vinna með einhvers konar heilsutengda ferðaþjónustu,“ útskýrir hann. Fram kemur í erindi sem Haraldur hefur sent Reykjavíkurborg að forsenda fyrir frekari þróun verkefnsins í samvinnu við aðra landeigendur á svæðinu og skipulagsyfirvöld sé að fyrir liggi að áformuð starfsemi falli að gildandi aðalskipulagi. Þar er jafnframt bent á að samkvæmt aðalskipulagi megi gera ráð fyrir starfsemi í tengslum við ferðaþjónustu og afþreyingu. Hann óskar eftir umsögn skipulagsfulltrúa. „Ef niðurstaða slíkrar umsagnar er jákvæð þá hyggst viðkomandi festa kaup á landinu samkvæmt fyrirliggjandi kaupréttarsamningi þar um við núverandi landeiganda og hefjast handa við undirbúning verkefnisins," skrifar Haraldur. „Eitt skref í áttina að því að gera þetta fýsilegra fyrir erlenda fjárfesta er að það liggi fyrir að svo sé,“ segir hann við Fréttablaðið. Erindi Haraldar var tekið fyrir á síðasta fundi skipulagsfulltrúa Reykjavíkur sem vísað því til umsagnar hjá verkefnisstjóra. Þess má geta að Haraldur segir aðspurður að hinir erlendu aðilar séu ekki Carpenter og Co. sem hann starfar einnig fyrir og er að byggja hótel sem Marriot-keðjan hyggst reka við hlið Hörpunnar.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Innlent Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri Innlent Dregur framboðið til baka Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ Innlent „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Innlent Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Erlent Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Innlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Fleiri fréttir Refsing fyrir að nauðga stjúpdóttur æskuvinar þyngd Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Hjúkrunarfræðingurinn ekki laus allra mála enn Trúnaðarsamtöl við forsætisráðherra lykilatriði Sprakk úr hlátri „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Með hundruð sjálfboðaliða í liði sínu Samskiptaleysi meðal lögreglumanna olli því að fólk var sektað Verði ekki meðvirk frekar en Ólafur Ragnar Rifjaði upp þegar forsetinn bjargaði landinu Skemmdarvargar á eftir útilistaverkum eftir Einar Jónsson Krafturinn í gosinu gæti aukist verulega haldi kvikusöfnun áfram Þrettánda nafnið bætist við Fimm af tólf skiluðu einungis rafrænum meðmælum Gylfi leiðir samhæfingu vegna Grindavíkur María Sigrún látin fara úr Kveik Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Forsetaefni streymdu í Hörpu Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Rekin vinalega á brott en vonast til að fá að vera áfram „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ „Óskiljanlegt að menn skuli leggjast svona lágt“ Dregur framboðið til baka Niðri fyrir vegna Útlaganna Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Kínverjar vara Bandaríkjamenn við að stíga á „rauðu strikin“ Samtök hernaðarandstæðinga fordæma „kúvendingu“ á afstöðu Íslands Leyfislausar tjaldbúðir og sundsprettur eftir lokun Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Sjá meira