Sport

Kærasta Phelps er intersex

Phelps og Chandler.
Phelps og Chandler.
Einn besti íþróttamaður allra tíma, Michael Phelps, er á milli tannanna á fólki þessa dagana. Hann er í meðferð og var að komast að því að kærastan hans fæddist sem karlmaður.

Kærastan, Taylor Lianne Chandler, er intersex en var skráð sem karlmaður við fæðingu. Hún fæddist með kynfæri karlmanns en engin eistu. Hún fæddist með leg en enga eggjastokka. Henni var gefið nafnið David Roy Fitch.

Á táningsaldri var David sannfærður um að hann væri kona en ekki karl og byrjaði því í meðferð og breytti nafni sínu. Fljótlega upp úr tvítugu fór hún síðan í aðgerð og varð kona að fullu.

„Ég var aldrei karlmaður í fullum skilningi. Ég lifði aldrei sem karlmaður," skrifaði Chandler á Facebook en bætti við að hún væri afar ástfangin af Phelps.

Samt hefði hún aldrei sagt honum allan sannleikann um sig. Hún óttast að missa hann eftir þessa játningu sína á Facebook.

„Hann mun örugglega losa sig við mig enda er hann vörumerki og margir vinna við að vernda það vörumerki."

Phelps er sjálfur í meðferð þessa dagana en hann hefur verið að glíma við Bakkus. Hann mun því ekki geta rætt málið við Chandler strax.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×