Spellvirkjar ganga enn lausir
Spellvirkjar hafa nú tvisvar á fáeinum árum sprautað gyllingu á útilistaverk eftir Einar Jónsson myndhöggvara. Enn hefur ekki tekist að hafa upp á þeim. Deildarstjóri Listasafns Reykjavíkur segir um meiriháttar skemmdarverk að ræða. Ráðast þurfi í kostnaðarsamar og flóknar viðgerðir.