Skemmdu bíl öryrkja og ældu á hann líka

„Ekki nóg með að það sé búið að skemma bílinn svona þá er búið að æla á hann hérna," segir Una Nikulásdóttir í meðfylgjandi myndskeiði þegar hún lýsir skemmdarverknaði sem unninn var á bíl föður hennar, Toyotu Hiace árgerð 1998, aðfaranótt mánudags við heimili hans Álfaskeið 64 Hafnarfirði. Framrúða bílsins var brotin og hægra framljósið líka, þá eru dældir á húddi bílsins eftir grjót sem notað var við verknaðinn. Ekki nóg með það heldur var bíllinn útataður í mold og skemmdarvargarnir ældu líka á vinstri hlið bílsins eins og Una sýnir í myndskeiðinu.

23446

Vinsælt í flokknum Lífið