Hross í oss - sýnishorn

Sýnishorn úr frumraun Benedikts Erlingssonar leikara sem kvikmyndaleikstjóra. Hross í oss verður hún frumsýnd í íslenskum kvikmyndahúsum 28. ágúst. Myndin fjallar um fólk sem býr í íslenskri sveit og hvernig íslenski hesturinn fléttast inn í örlög þeirra, ástir og dauða. Segja má að hún fjalli um hið mennska í hrossinu og hrossið í manninum, líkt og titill myndarinnar vísar til. Myndin er stjörnum prýdd en með helstu hlutverk í Hross í oss fara Ingvar E. Sigurðsson, Charlotte Bøving, Kristbjörg Kjeld, Steinn Ármann Magnússon, Atli Rafn Sigurðarson, Halldóra Geirharðsdóttir, Helgi Björnsson, Kjartan Ragnarsson, Erlingur Gíslason, María Ellingsen, Sigríður María Egilsdóttir og Juan Camillo Roman Estrada. Aðalframleiðandi myndarinnar er Friðrik Þór Friðriksson. Of Horses and Men verður enska heitið á myndinni.

4970
01:46

Næst í spilun: Íslenskar kvikmyndir

Vinsælt í flokknum Íslenskar kvikmyndir