Auknar fjárveitingar til SÁÁ
Komið verður til móts við óskir SÁÁ um auknar fjárveitingar á næsta ári sem og heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni samkvæmt tillögum meirihlutans í fjárlaganefnd. Þá verða fjárveitingar til byggingaframkvæmda á Landsspítalanum og skrifstofu Alþingis minnkaðar og minna fer til að hækkunar framlaga til öryrkja en gert var ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu.