Níu handteknir eftir hryðjuverkaárásina í Keníu

Níu hafa verið handteknir í tengslum við hryðjuverkaárásina sem var framin á hóteli í Naíróbí, höfuðborg Keníu á þriðjudag. Árásarmennirnir fimm voru allir felldir í umsátri lögreglu. Tuttugu og einn lét lífið í árásinni. Stjórnvöld í Kenía heita því að hafa upp á skipuleggjendum árásarinnar en sómölsku hryðjuverkasamtökin al-Shabab segjast hafa staðið fyrir henni.

12
00:26

Vinsælt í flokknum Fréttir