Innlent

Juncker segist svikinn af grískum ráðamönnum

Atli Ísleifsson skrifar
Jean-Claude Juncker sakaði Grikklandsstjórn um eigingirni og popúlisma.
Jean-Claude Juncker sakaði Grikklandsstjórn um eigingirni og popúlisma. Vísir/AFP
Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, var harðorður í garð grísku ríkisstjórnarinnar á fréttamannafundi í morgun og segir hana hafa „svikið“ sig í viðræðum Grikkja og lánadrottna þeirra.

Á fréttamannafundinum sagði Juncker gríska ráðamenn hafa sýnt fram á mikla „eigingirni“ og „popúslisma“ í viðræðunum.

Sjálfur hafi hann gert allt til að auðvelda það að ná fram samkomulagi, en að tillögur Grikklandsstjórnar hafi bæði skilað sér seint og hafi verið „vísvitandi breytt“. Þannig ætti ESB ekki skilið gagnrýni Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands, og annarra ráðherra grísku stjórnarinnar.

Juncker vísaði einnig til orða grískra ráðamanna um „úrslitakosti“ og „kúgun“. „Það er ekki samboðið Grikklandi að setja sig upp á móti átján öðrum lýðræðisríkjum [evruríkin]. Það hjálpar engum, að minnsta kosti ekki grísku þjóðinni.“

Ekkert lýðræðisríki meira virði en annað

Þá sagði Juncker að ekkert lýðræðisríki vera meira virði en annað. „Annað hvort erum við öll sigurvegarar, eða þá öll taparar. Þess vegna er það mjög sörglegt, það sem Evrópa hefur upplifað síðustu dagana. Taktískir leikir og popúlístísk útspil hefur tekið yfir aðra þætti.“

Sjá einnig: Fyrsta þjóðaratkvæðagreiðslan í Grikklandi í 41 ár

Gríska kauphöllin opnar ekki í dag og þá verða bankar í Grikklandi lokaðir alla þessa viku. Gríska ríkisstjórnin tók þá ákvörðun í kjölfar þess að Seðlabanki Evrópu ákvað að lengja ekki í línu neyðaraðstoðar til handa bönkunum svo þeir gætu haldið starfsemi sinni áfram.

Engin skyndilausn í boði

Juncker sagði enga skynilausn vera í boði til að bjarga grískum efnahag. Slíkt krefjist umbóta.

Hann varði tillögur ESB og hafnaði því að þær fælu meðal annars í sér skertar lífeyrisgreiðslur til Grikkja. „Slíkar tillögur voru aldrei uppi á borði. Það sem er uppi á borðum eru tillögur um að nútímavæða gríska opinbera geirann.“ Þá sagði Juncker að ESB hafi farið fram á niðurskurð í grískum varnarmálum sem hann lýsti sem „fullkomlega sanngjörnum“.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×