Lífið

Júlíspá Siggu Kling - Fiskur: Hamingjan bankar á dyrnar

Sigga Kling skrifar
Elsku fallegi seiðandi Fiskurinn minn.  Hversu dásamlegt á þetta sumar eftir að verða? Það eina sem getur að einhverju leyti truflað þig eða snúið þig niður er annað fólk sem þú ert að stressa þig á, en hefur enga ástæðu til.

Það er mikil spenna yfir þessu sumri, dásamlegur hraði, svolítið ógnvekjandi stundum, en í þessum hraða ert þú alveg með fótinn nálægt bremsunni, svo þú getur stjórnað þessu sjálfur.Þetta sumar byggist allt á sjálfstrausti, ég get, ætla og skal, er yfirskrift þín, og skammstöfunin er gæs, það er það eina sem þú þarft að muna ef stressið er að bíta þig í bakhlutann.



Rómantíkin svífur svoleiðis aldeilis yfir vötnum að jafnvel hundarnir elta þig heim ef þeir mögulega geta. Þeir sem eru í sambandi þurfa að gefa sér meira rými. Leyfa sér bara að vera tvær turtildúfur og búa til dásemdarheim. Þið hinir laflausu gætuð haldið daðursnámskeið, það er svo mikið flört í kringum ykkur. Daður er jákvætt, það er nú ekki alltaf sexúal, þið þurfið að skoða það.



Það er að koma til ykkar fólk sem segir við ykkur: „Get ég ekki hjálpað þér í þessu, má ekki bjóða þér þetta, eigum við ekki að gera þetta saman?“ Þú verður svo hissa, en þú ert búinn að vinna þér þennan kraft inn í líf þitt. Það ert þú sem ert búinn að hekla þetta dásamlega karma sem þú ert að uppskera núna. Hamingjan mun banka og þú verður heima hjá þér þegar hún gerir það. Þú verður mjög heppinn, en kannski á síðustu stundu, bara svo þú getir orðið pínulítið stressaður. Þú nærist stundum á stressinu, elsku hjartað mitt, það er viss orka, stress og ótti eru vinir, en þú þarft ekkert að óttast. Það er mikilvægt að hvíla sig, sofa aðeins meira, slaka á í vinnu og leika sér. Mottóið er: „Taktu lífið ekki of alvarlega, þú munt ekki komast lifandi frá því.“




Lífið er yndislegt.




Frægir Fiskar: Elísabet Ásberg listamaður, Beggi hans Pacasar, Baltasar Kormákur leikstjóri, Díana Ómel fjöllistakona, Árni Johnsen, fyrrverandi þingmaður, Albert Einstein, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, Vigdís Hauksdóttir þingkona, Ilmur Kristjánsdóttir leikkona, Svavar Örn engill, Páll Óskar poppstjarna, Katla Sign og Baby Kling.

Tengdar fréttir

Júlíspá Siggu Kling - Ljónið: Þú verður að nenna ástinni

Elsku Ljónið mitt. Aldrei hefur nokkurn tíma verið sagt að það sé sérlega auðvelt að vera Ljón, en ég er alveg viss um að þótt þú fengir tilboð um að skipta um merki, þá myndir þú ekki gera það. Þið Ljónin eruð náttúrulega öll konungborin.

Júlíspá Siggu Kling - Tvíburinn: Þitt besta sumar í lengri tíma

Elsku Tvíburinn minn. Ekki hefur verið lognmollunni fyrir að fara í kringum þig. Fólk reynir hvað það getur að hafa stjórn á þér en þú átt bara ekki að leyfa því það. Það getur enginn breytt líðan þinni nema þú gefir samþykki. Passaðu þig á þessu.

Júlíspá Siggu Kling - Vatnsberinn: Slúður er rödd andskotans

Hjartans Vatnsberi. Þú ert að fara inn í merkilegan tíma. Þú ert að fara inn í tíma heiðarleika. Þú ert að fara inn í tíma þar sem að sannleikurinn skiptir ofsalega miklu máli, þú átt eftir að heyra hver sannleikurinn er í hlutum sem þig óraði ekki fyrir.

Júlíspá Siggu Kling komin á Vísi!

Stjörnuspár Sigríðar Klingenberg spámiðils njóta gríðarlega vinsælda undanfarin ár. Mánaðarlega spáir hún fyrir lesendum Vísis og Fréttablaðsins, í formi texta og myndbands, en spár hennar fyrir júnímánuð má sjá hér fyrir neðan.

Júlíspá Siggu Kling - Krabbinn: Greddan ræður ríkjum

Elsku Krabbinn minn. Það er svo rosalega mikill Venus í kringum þig í sumar. Þú elskar og verður elskaður. Þú verður svo spenntur fyrir svo dæmalaust mörgu að þú veist varla hvert þú átt að stefna. Það er samt allt í lagi.

Júlíspá Siggu Kling - Vog: Hættu þessu tuði

Elsku hjartans Vogin mín. Ekki hafa samviskubit yfir neinu, ekkert bit er sárara einmitt en það. Þú pælir svo mikið í að þú eigir nú að vera búin með þetta, og þú þurfir að klára hitt og vera til staðar þarna, að þú getir fengið svo mikið samviskubit af þessu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×