Innlent

Jón Steinar segir hugmyndir Balta og Illuga ekki samræmast jafnréttishugsjón

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður og fyrrum dómari við Hæstarétt, telur hugmyndir um kynjakvóta við úthlutun úr Kvikmyndasjóði brjóta gegn stjórnarskrá.
Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður og fyrrum dómari við Hæstarétt, telur hugmyndir um kynjakvóta við úthlutun úr Kvikmyndasjóði brjóta gegn stjórnarskrá. Vísir
Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttardómari, spyr í Fréttablaðinu í dag hvort þeir Baltasar Kormákur Samper, leikstjóri, og Illugi Gunnarsson, menntamálaráðherra, meini raunverulega óskir sínar um kynjakvóta í kvikmyndagerð eða hvort þeir séu „aðeins að reyna að ganga í augu kvenna.“

„Það væri þá ekki í fyrsta sinn sem karlmenn leggja leið á lykkju sína í þeim tilgangi.“

Jón Steinar vísar þar í ummæli Baltasars Kormáks í Föstudagsviðtalinu þar sem hann segist styðja hugmyndir um kynjakvóta þegar kemur að úthlutunum úr Kvikmyndasjóði Íslands og telur í raun að stækka ætti sjóðinn og að öll viðbótin ætti að fara í sérstakan styrktarsjóð fyrir konur. Illugi sagði í kjölfarið í samtali við Fréttablaðið að rök Baltasars séu góð þrátt fyrir að almennt sé hann ekki hrifinn af kynjakvótum.

Vill setja á kynjakvóta Baltasar segir engin rök halda í því að konur séu síðri leikstjórar en karlmenn. Fréttablaðið/valli
„Við erum að missa af hæfileikaríkum konum. Ef við látum þetta standa óáreitt þá breytist ekkert. Þetta er óæskileg staða, eins og hún er í dag,“ sagði Illugi.

Þetta gagnrýnir Jón Steinar. „Ekki verður betur séð en að þessir menn séu að mæla með því að gert skuli upp á milli umsókna um framlög úr þessum opinbera sjóði á grundvelli kynferðis umsækjenda. Í orðum þeirra felst ráðagerð um að karlmenn sem sækja um skuli ekki njóta sama réttar til framlags og konur.“ Jón Steinar vísar í jafnræðisákvæði stjórnarskrárinnar þar sem segir: „Konur og karlar skulu njóta jafns réttar í hvívetna.“

Hann hvetur þá Baltasar og Illuga til að útskýra hvernig hugmyndir þeirra samrýmast ákvæðinu sem hann nefnir.  

„Nema þeir meini ekkert með því sem þeir segja og séu aðeins að reyna að ganga í augu kvenna.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×