Fótbolti

Jón Daði: "Ég ætla ekki að vera einhver Solskjær"

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Daði Böðvarsson í búningi Viking.
Jón Daði Böðvarsson í búningi Viking. Mynd/Úr einkasafni
21 árs gamall Selfyssingur er búinn að vinna hug og hjörtu allra í Stafangri í Noregi, það er allra nema kannski þjálfarans, KjellsJonevret. Jón Daði Böðvarsson hefur skorað þrjú glæsileg mörk í fyrstu þremur umferðum norsku úrvalsdeildarinnar í ár og er markahæsti leikmaður deildarinnar þrátt fyrir að hafa ekki fengið að byrja einn leik.

Hollur höfuðverkur

„Mér finnst ég vera búinn að spila allt of lítið en það er eitthvað sem ég get ekki breytt því það er bara þjálfarinn sem velur liðið. Ég held að ég setji pressu á hann núna og ég held að karlinn hafi bara gott af því. Þetta er orðinn hollur höfuðverkur fyrir hann,“ segir Jón Daði léttur.

Pressan á þjálfarann Kjell Jonevret er orðin svakaleg enda Jón Daði vinsæll meðal bæði fjölmiðlamanna og stuðningsmanna.

„Þegar það gengur svona vel þá er athyglin mikil. Ég hef aldrei verið á móti athyglinni þannig að þetta er bara gaman. Það eru allir á því hér að ég eigi að vera í byrjunarliðinu, sem er skiljanlegt þegar það er búið að ganga svona vel,“ segir Jón Daði.

Hann vakti fyrst athygli í fyrsta leik þegar hann kom inn á sextán mínútum fyrir leikslok á útivelli á móti Rosenborg og breytti stöðunni úr 0-2 í 2-2 með tveimur flottum mörkum.

Yfirvegaðri en í fyrra

„Mér finnst ég vera yfirvegaðri inni á vellinum en á síðasta tímabili,“ segir Jón Daði og um síðustu helgi skoraði hann sigurmarkið á móti Lilleström eftir að hafa komið inn á sem varamaður.

„Ég ætla samt ekki að vera einhver Solskjær,“ segir Jón Daði hlæjandi, aðspurður hvort hann sé að breytast í svokallaðan „súper-sub“. Jón Daði lítur heldur ekki lengur á sig sem miðjumann.

„Ég hef alltaf verið leikmaður sem er úti um allt, úti á báðum köntum eða fyrir aftan framherjann. Það er eins og það sé kominn meiri stöðugleiki hjá mér og að framherjinn sé orðin mín staða. Hún hentar mér best og ég hef náð að klára færin mín mjög vel í fyrstu leikjunum,“ segir Jón Daði.

Einn af fimm Íslendingum

Hann er einn af fimm íslenskum leikmönnum Viking-liðsins en með liðinu spila einnig Indriði Sigurðsson, Steinþór Freyr Þorsteinsson, Sverrir Ingi Ingason og Björn Daníel Sverrisson.

„Ég er ekkert að kvarta yfir því. Það er gott að hafa þennan félagsskap og þetta eru allt fagmenn. Norsararnir eru mjög hrifnir af Íslendingum og þeir hafa mjög góða reynslu af þeim,“ segir Jón Daði.

Jón Daði viðurkennir að fyrsta tímabilið hafi verið mikill skóli fyrir sig en þá þurfti hann oftar en ekki að byrja á bekknum.

„Það er stórt skref að koma úr svona litlum klúbb eins og á Selfossi og í stóran pakka eins og Viking er. Það tók kannski eitt tímabil fyrir mig að ná áttum og venjast öllu saman. Ég tek allt gott úr því. Mér fannst þetta vera mjög jákvætt tímabil í fyrra þrátt fyrir að spilatíminn hafi ekki verið mikill. Ég lærði alveg gríðarlega mikið og þroskaðist í leiðinni,“ segir Jón Daði. Hann fór meðal annars til íþróttasálfræðings til að hjálpa sér í gegnum mótlætið.

„Það var mikið andlega hliðin sem ég þurfti að laga,“ segir Jón Daði og hann er alltaf að reyna að bæta sig.

Gerir kærustuna stundum bilaða

„Á frídögum fer ég út að æfa því mér líður illa ef ég hreyfi mig ekki. Ég get stundum gert kærustuna mína alveg bilaða með því hvað ég er of metnaðarfullur stundum,“ segir Jón Daði í léttum tón en hann veit vel að stuðningsmennirnir vilja sjá hann í liðinu í næsta leik.

„Það sem er búið að vera frábært við þetta, að mér sé búið að ganga svona vel þrátt fyrir að spila svona lítið, er að ég er fá svo mikinn stuðning frá stuðningsmönnunum og almenningi í heild sinni. Það gefur mér alveg þvílíkt sjálfstraust því þá veit ég að ég er að gera góða hluti,“ sagði Jón Daði að lokum.


Tengdar fréttir

Jón Daði hetja Viking

Varamaðurinn Jón Daði Böðvarsson tryggði Íslendingaliðinu Viking sætan 0-1 útisigur á Lilleström í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×