Innlent

Jarðeldarnir stigmagnast og líkur aukast á gosi í jökli

Kristján Már Unnarsson skrifar
Jarðeldarnir norðan Dyngjujökuls hafa nú stigmagnast með opnun nýrrar gossprungu í morgun. Líkur á að sprungan opnist undir jöklinum með hættu á hlaupi í Jökulsá á Fjöllum hafa enn aukist, segir Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur.

Eldvirknin var í dag enn langmest sunnan við miðbik sprungunnar sem opnaðist um síðustu helgi, einnig gýs áfram á báðum endum sprungunnar, bæði nyrst og syðst.

En þegar myndavélinni er beint sunnar sjáum við sporð Dyngjujökuls birtast fjær en síðan kemur í ljós nýjasta viðbótin í þessari mögnuðu atburðarás; ný gossprunga sem opnaðist snemma í morgun. Hún er áætluð um 400 metra löng og því talsvert minni en hin sprungan, sem er um 1.500 metra löng.

Hún er hins vegar mun nær jöklinum, aðeins um einn til einn og hálfan kílómetra frá jökulsporðinum. Það er því að rætast sem vísindamenn höfðu spáð, að líklegast væri að gossprungan myndi teygja sig nær jöklinum.

Í forföllum flugvélar Landhelgisgæslunnar, sem sinnir verkefni á Grænlandi, var flugvél ISAVIA, sem Mýflug hefur á leigu, fengin til að hlaupa í skarðið og flaug með vísindamenn í dag yfir svæðið.

„Þetta er nú miklu minna gos sem er á þessum stað,” sagði Magnús Tumi Guðmundsson eftir lendingu um nýju sprunguna. „En þetta gerist á sama tíma og það er fullur kraftur í gömlu gossprungunni. Þetta er náttúrlega viss stigmögnun.”

Myndir í frétt Stöðvar 2 í kvöld, sem Þórhallur Jónsson hjá Pedró-myndum tók, sýna vel þann mikla kraft sem enn er í jarðeldunum, nú á sjötta degi. Helsti tilgangur flugferðar vísindamanna í dag var hins vegar að skoða yfirborð Bárðarbungu og Dyngjujökuls og fannst ný sigdæld í Dyngjujökli. Sú er breið og grunn og um 10 kílómetra inni í jöklinum.

Magnús Tumi Guðmundsson á Reykjavíkurflugvelli síðdegis.Stöð 2/Sigurjón Ólason.
„Þetta er í fullum gangi. Líkurnar á því að þetta teygi sig alla leið inn undir Dyngjujökul hafa fremur aukist miðað við atburði dagsins. Svo við bara bíðum og sjáum hverju fram vindur,” segir Magnús Tumi. 

Ýmsir hafa gagnrýnt Almannavarnir fyrir að halda svæðinu lokuðu gagnvart almenningi og aðgangur fjölmiðlamanna- og visindamanna hefur einnig verið takmarkaður. 

„Ég held að það sé full ástæða til, og atburðir þeir sem við höfum séð í dag, undirstrika mikilvægi þess að það sé ekki fólk á svæðinu nema það virkilega þurfi þess. Vegna þess að ef sprungan fer af stað undir jöklinum þá fer hlaup yfir Flæðurnar og þá er sá illa staddur sem þar er,” segir Magnús Tumi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×