Viðskipti erlent

iWatch sagt koma út í þremur útgáfum

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/AFP
Apple mun gefa út þrjár mismunandi útgáfur af iWatch tölvuúrunum, samkvæmt taívanskum fjölmiðli. Þar er því haldið fram að ein útgáfan verði með 1,6 tommu skjá og hinar tvær með 1,8 tommu skjá.

Munurinn á milli tækjanna sem verða með 1,8 tommu skjá er sagður vera að í aðra týpuna verður sett safír gler.

Úrin eru sögð nýta nýja kynslóð snertiskynjara .

Þá er því einnig haldið fram að tækin komi á markað á þriðja fjórðungi þess árs. Það er þó í mótsögn við aðrar fréttir um að úrin fari ekki í fjöldaframleiðslu fyrr en í nóvember.

Á vefnum G for games segir að 5,5 tommu útgáfa iPhone 6 símans hafi verið frestað og komi ekki á markað fyrr en á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×